- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fékk höfuðhögg í Kórnum

Hulda Bryndís Tryggvadóttir miðjumaður KA/Þórs fékk talsvert höfuðhögg í leik í gærkvöld. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Hulda Bryndís Tryggvadóttir miðjumaður toppliðs Olísdeildar kvenna, KA/Þórs, fékk höfuðhögg á áttundu mínútu síðari hálfleiks viðureignar HK og KA/Þórs í Kórnum í gærkvöld en þar mættust liðin í lokaleik 12. umferðar deildarinnar.

Hulda Bryndís sótti að vörn HK og kastaði boltanum í átt að marki HK en á leiðinni varð varnarmaður HK fyrir boltanum með þeim afleiðingum að knötturinn kastaðist til baka í höfuð Huldu Bryndísar. Lá hún eftir. Þegar hugað hafði verið að Huldu Bryndísi var hún færð inn í búningsklefa til aðhlynningar. Hún kom ekkert meira við sögu í leiknum.

KA/Þór vann leikinn, 29:23, eins og handbolti.is skýrði frá í gærkvöld ásamt viðtölum eftir leikinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -