- Auglýsing -
Andrea Jacobsen fór á kostum í kvöld þegar Kristianstad vann Anakara Yenimahalle BSK með 14 marka mun í síðari viðureign þeirra í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik, 35:21.
Andrea var næst markahæst hjá Kristianstad með sjö mörk auk þess sem hún átta sjö stoðsendingar.
Báðir leikir liðanna fór fram í Svíþjóð og eru Andrea og samherjar þar komnar í 16-liða úrslit keppninnar eftir að hafa unnið 63:44 samanlagt í tveimur leikjum.
Andrea er í íslenska landsliðinu sem tekur þátt í fjögurra liða móti í Tékklandi í næstu viku.
- Auglýsing -