- Auglýsing -
- Auglýsing -

Arnar og Neistamenn hrepptu bronsverðlaun

Bornslið Neistans. Arnar Gunnarsson þjálfari er annar frá hægri í annarri röð. Mynd/FB-síða Handknattleikssambands Færeyja
- Auglýsing -

Arnar Gunnarsson, þjálfari Neistans, og leikmenn hans hlutu í kvöld bronsverðlaun í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik karla. Neistin vann KÍF frá Kollafirði, sem Hörður Fannar Sigþórsson leikur með, 35:33, í viðureign um bronsið.


Hörður og félagar, sem voru hársbreidd frá því að slá H71 út í undanúrslitum, voru marki yfir að loknum fyrri hálfleik í kvöld en leikurinn fór fram í Kollafirði. Lærisveinar Arnars voru sterkari á lokasprettinum.


Hörður Fannar skoraði fjögur mörk í leiknum. Finnur Hansson var í leikmannahópi Neistans en skoraði ekki mark. Dánjal Ragnarsson verðandi leikmaður ÍBV skoraði í tvígang fyrir Neistann.

Í febrúar hreppti lið Neistans silfur í bikarkeppninni.


H71 og VÍF frá Vestmanna mætast í fyrsta úrslitaleiknum um meistaratitilinn á morgun

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -