Beint: Dregið í riðla HM karla 2023

Heimsmeistaramótið í handknattleik karla fer fram í Svíþjóð og Póllandi í janúar á næsta ári. Klukkan 15 í dag hefst athöfn í Katowice í Póllandi þar sem dregið verður í átta fjögurra liða riðla mótsins. Ísland er í efsta styrkleikaflokki af fjórum. Handbolti.is fylgist með drættinum í textalýsingu hér fyrir neðan.