Efst á baugi

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sara Dröfn skrifar undir nýjan samning í Eyjum

Handknattleiksdeild ÍBV hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Söru Dröfn Richardsdóttur hægri hornamann í bikar- og deildarmeistaraliði félagsins. Sara Dröfn er ung og bráðefnileg handboltakona, en hún hefur tekið gríðarlegum framförum undanfarið og hefur fest sig í...

Víkingar voru mikið sterkari í fyrstu atlögu

Víkingur byrjaði umspilskeppni Olísdeildar karla í handknattleik af krafti í Safamýri í kvöld fyrir framan nærri fullt hús áhorfenda með sjö marka sigri á Fjölni, 32:25, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:13.Næsti leikur...

Brynjar kemur heim til Þórs – Halldór tekur við þjálfun

Halldór Örn Tryggvason hefur á ný verið ráðinn þjálfari karlaliðs Þórs í handknattleik karla. Um leið snýr varnarjaxlinn Brynjar Hólm Grétarsson heim eftir veru fyrir sunnan og tekur að sér hlutverk aðstoðarþjálfara auk þess að leika með Þórsliðinu í...
- Auglýsing -

Hæpið að Sveinn Andri nái fleiri leikjum með Empor

Handknattleiksmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson leikur tæplega fleiri leiki fyrir þýska 2. deildarliðið Empor Rostock. Hann hefur ekki tekið þátt í síðustu leikjunum vegna meiðsla sem sennilega halda honum frá keppni tímabilið á enda. „Það flísaðist upp úr ristinni í leik...

Arnór Snær hefur samið við Löwen til tveggja ára

Þýsku bikarmeistararnir Rhein-Neckar Löwen staðfestu í morgun að samið hafi verið við Valsmanninn Arnór Snær Óskarsson. Samningurinn er til tveggja ára og flytur Arnór Snær til Mannheim í sumar og verður hluti af leikmannahópi liðsins frá og með næsta...

Dagskráin: Orrusta Víkinga og Fjölnismanna hefst

Umspilskeppni Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld. Þetta árið eigast við Víkingur og Fjölnir. Fyrsta viðureigninin fer fram í Safamýri og verður flautað til leiks klukkan 18. Vinna þarf þrjár viðureignir í umspilinu til þess að öðlast þátttökurétt...
- Auglýsing -

Molakaffi: Eyþór Ari, Elliði Snær, Lindberg, franska deildin

Eyþór Ari Waage hefur framlengt samningnum sínum við handknattleiksdeild ÍR um tvö ár. Eyþór Ari leikur í vinstra horni og skoraði 32 mörk í Olísdeildinni í vetur. Hann er fjórði leikmaður ÍR sem framlengir samning sinn við félagið á...

Sólveig Lára heldur áfram – happafengur fyrir ÍR

Sólveig Lára Kjærnested hefur samið um að halda áfram þjálfun meistaraflokks liðs ÍR í kvennaflokki. Hún tók við þjálfun liðsins á síðasta sumri og „hefur reynst félaginu mikill happafengur,“ eins og segir orðrétt í tilkynningu frá ÍR. Undir stjórn...

Valur staðfestir komu Viktors

Handknattleiksmaðurinn Viktor Sigurðsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Val, Viktor, sem er 21 árs gamall, kemur til Vals frá ÍR þar sem hann lék upp yngri flokka og upp í meistaraflokk. Viktor varð fjórði markahæsti leikmaður Olísdeildarinnar...
- Auglýsing -

Aron ekki með í Tel Aviv – Þorsteinn Leó leikur sinn fyrsta A-landsleik

Aron Pálmarsson fyrirliði hefur dregið sig út úr landsliðinu sem mætir Ísrael í næst síðustu umferð undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í Tel Aviv á fimmtudaginn. Aron er meiddur og hefur lítið leikið með danska liðinu Aalborg Håndbold síðustu vikur...

Andri Snær ætlar að sjá til

„Ég veit ekki. Ég ætla að sjá til,“ sagði Andri Snær Stefánsson þjálfari handknattleiksliðs KA/Þórs við handbolta.is í gær þegar hann var spurður hvort hann ætli sér að halda áfram þjálfun liðsins á næsta keppnistímabili. Andri Snær tók við...

Molakaffi: Jakob, Orri, Kristján, Axel, Elías, Elín

Jakob Lárusson og leikmenn Kyndils leika til úrslita um færeyska meistaratitilinn í handknattleik kvenna gegn H71. Kyndill vann Neistan, 30:29, í öðrum undanúrslitaleik liðanna í gær. Kyndill vann einnig fyrrri leikinn. Fyrsti úrslitaleikur H71 og Kyndils verður í vikunni.  Orri...
- Auglýsing -

Ágúst Elí og Elvar voru allt í öllu

Ágúst Elí Björgvinsson og Elvar Ásgeirsson voru í stórum hlutverkum og stóðu undir þeim í dag þegar Ribe-Esbjerg vann Kolding, 28:26, á heimavelli í þriðju umferð riðils tvö í úrslitakeppni efstu liðanna um danska meistaratitilinn í handknattleik. Ágúst Elí stóð...

Vildum svara fyrir okkur eftir vonbrigðin á Akureyri

„Við lögðum á það áherslu að sýna ákveðni og standard strax í byrjun og að okkur væri alvara að vinna leikinn og fara á fullri ferð inn í undanúrslitin,“ sagði Lena Margrét Valdimarsdóttir leikmaður Stjörnunnar í samtali við handbolta.is...

Alexandra Líf frá Noregi í Hafnarfjörð

Handknattleikskonan Alexandra Líf Arnarsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka í sumar og leika með liðinu á næsta keppnistímabili. Alexandra Líf hefur leikið með Fredrikstad Bkl. í norsku úrvalsdeildinni á yfirstandandi leiktíð eftir að hafa verið leikmaður...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -