Fréttir

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Undanúrslit karla og kvenna, nýjar fréttir og slúður

43. þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í gærkvöld. Í þættinum var fjallaðum þriðju leikina í undanúrslitum karla þar sem að Haukum tókst að halda lífi í einvíginu gegn ÍBV en Selfoss féll úr leik eftir að hafa tapað...

Molakaffi: Bikarmeistarar, Óskar, Viktor, Sara, Guðmundur, Sigtryggur, Victor, Rasmussen, Freitas

Væntanlegir leikmenn Fram á næsta keppnistímabili, Luka Vukicevic og Marko Coric, unnu austurrísku bikarkeppnina í handknattleik karla á laugardaginn með liði sínu, Bregenz. Þeir skoruðu fimm mörk hvor í úrslitaleiknum sem Bregenz vann, 32:30, gegn Handball Tirol. Óskar Ólafsson skoraði...

Lokapróf í meistaranámi að morgni og sæti í úrslitum að kveldi

Bjarni Ófeigur Valdimarsson leikur til úrslita um sænska meistaratitilinn í handknattleik með liðinu sínu IFK Skövde. Skövde vann Kristianstad í kvöld með fimm marka mun, 36:31, í Kristianstad í fjórðu viðureign liðanna í undanúrslitum. Um leið var um að...
- Auglýsing -

Fram færist skrefi nær úrslitum

Fram stendur vel að vígi eftir að hafa unnið ÍBV öðru sinni í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 20:18, eftir að jafnt var að loknum fyrri hálfleik, 9:9. Framliðinu vantar þar með aðeins einn vinning...

KA/Þór jafnaði metin í háspennuleik

Íslandsmeistarar KA/Þórs hafa jafnað metin í einvígi sínu við Val í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik eftir þriggja marka sigur, 26:23, í KA-heimilinu í kvöld í annarri viðureign liðanna. Næsti leikur liðanna verður í Origohöllinni á fimmtudagskvöld. KA/Þórsliðið lék afar...

Skammt stórra högga á milli hjá Gunnari

Handknattleiksþjálfarinn Gunnar Gunnarsson var ekki lengi að fá nýtt starf eftir að Haukar leystu hann undan samningi í gær. Fyrir stundu var tilkynnt að Gunnar taki við þjálfun kvennaliðs Gróttu af Kára Garðarssyni. Grótta hefur samið við Gunnar til...
- Auglýsing -

Torsótt en lærdómsrík leið – Herbert fagnaði með ÍR-ingum

„Það er virkilega kærkomið og um leið mikilvægt fyrir félagið að endurheimta sætið í Olísdeildinni eftir eins árs veru í Grill66-deildinni,“ sagði Kristinn Björgúlfsson, þjálfari ÍR, í samtali við handbolta.is í dag. ÍR vann í gær Fjölni í umspili...

Þórður Tandri heldur sínu striki með Stjörnunni

Línumaðurinn sterki, Þórður Tandri Ágústsson, hefur ákveðið að taka slaginn áfram með Stjörnunni í Olísdeild karla. Hann hefur af því tilefni skrifað undir framlengingu á veru sinni hjá félaginu. Þórður Tandri kom til liðs við Stjörnuna fyrir ári frá Þór...

Þrír framlengja samninga sína við Hörð

Nýliðar Harðar í Olísdeild karla hafa framlengt samninga sína við þrjá sterka leikmenn liðsins sem léku með liðinu á nýliðnum vetri. Um er að ræða Mikel Amilibia, Suguru Hikawa og Tadeo Salduna, eftir því sem fram kemur í tilkynningu...
- Auglýsing -

Kári lætur gott heita hjá Gróttu

Kári Garðarsson er hættur þjálfun kvennaliðs Gróttu. Hann staðfesti það við handbolta.is í dag. Kári stýrði sínum síðasta leik gegn HK í undanúrslitum Olísdeildar á dögunum. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver tekur við af Kára. „Þetta er komið...

Með samningnum er lagður hornsteinn

Eins og kom fram á handbolta.is á föstudaginn þá hefur handknattleiksþjálfarinn Stevce Alusovski ákveðið að vera áfram í herbúðum Þórs á Akureyri. Í gær sagði Akureyri.net frá að Alusovski hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Árni Rúnar...

Dagskráin: Svara KA/Þór og ÍBV fyrir sig?

Þráðurinn verður tekinn upp í kvöld í undanúrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik. Önnur umferð fer fram á Akureyri og Vestmannaeyjum. KA/Þór tekur á móti Val í KA-heimilinu klukkan 18. Valur vann fyrsta leikinn naumlega, 28:27, á föstudaginn. Fram vann stórsigur...
- Auglýsing -

Bengt Johansson er látinn

Sænski handknattleiksþjálfarinn Bengt Johansson, maðurinn á bak við gullöld sænska landsliðsins á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og á fyrstu árum 21. aldar, er látinn 79 ára gamall. Sænska handknattleikssambandið greinir frá þessu í morgun og segir Johansson...

Molakaffi: Bjarki Már, Daníel Þór, Oddur, Ýmir Örn, Arnór Þór, Viggó, Andri Már, Teitur Örn, staðan

Bjarki Már Elísson átti enn einn stórleikinn fyrir Lemgo í gær þegar liðið lagði Balingen á útivelli, 32:29, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Daníel Þór Ingason skoraði eitt mark fyrir Balingen. Oddur Gretarsson er ennþá frá vegna meiðsla....

Valsmenn eru klárir í titilvörnina

Valur tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik með þriðja örugga sigrinum á Selfossi í undanúrslitum. Að þessu sinni munaði níu mörkum á liðunum, 36:27, þegar leiktíminn var úti i Origohöllinni. Valur var með sjö...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -