Fréttir

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þjóðverjar senda smitaða heim með sjúkraflugi

Þjóðverjar eru byrjaðir að fækka í liðsafla sínum á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla. Ekkert lið á mótinu hefur orðið harðar fyrir barðinu á covid19 en þýska landsliðið sem hefur kallað til 29 leikmenn, þar af fimm markverði. Tveir fyrstu leikmennirnir,...

Myndskeið: Það besta af því besta hjá strákunum okkar

Hér fyrir neðan er samantekt frá sigurleik íslenska landsliðsins í handknattleik karla, strákanna okkar, á Frökkum í gær. Frábær mörk og stórglæsilega markvarsla. Rifjum aðeins upp það besta frá leiknum í gær í þessu skemmtilega þriggja mínútna myndskeiði frá...

Myndasyrpa: Minningar gleði frá sigurkvöldi

Laugardagskvöldið 22. janúar 2022 á eftir að verða íslensku handknattleiksáhugafólki minnistætt um langt skeið. Kvöldið sem strákarnir okkar sýndu Ólympíumeisturum Frakkar hvar Davíð keypti ölið í MVM Dome, íþróttahöllinni í Búdapest. Frakkar voru sem lömb í fangi strákanna okkar og...
- Auglýsing -

Molakaffi: Díana Dögg, Andrea, Aron, Jakobsen, Alilovic, á Plogv Hansen

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt mark í sex tilraunum þegar lið hennar BSV Sachsen Zwickau tapaði naumlega fyrir Oldenburg á heimavelli í gær í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 28:27. Hún átti einnig fjórar stoðsendingar.  Zwickau var fjórum mörkum...

Berserkir hafa síður en svo gefist upp

Þrátt fyrir talsvert mótlæti og tap í níu fyrstu leikjum sínum í deildinni sýndu og sönnuðu nýliðar Berserkja í dag að þeir láta ekki deigan síga í keppninni í Grill66-deild karla í handknattleik. Í tíunda leik sínum í deildinni...

Erla Rós fór á kostum og ÍBV sneri við taflinu

ÍBV átti magnaðan endasprett gegn Haukum á heimavelli í dag og unnu góðan sigur, 29:27, í Olísdeild kvenna í handknattleik. Tuttugu mínútum fyrir leikslok benti margt til þess að Haukar færu með bæði stigin í farteskinu heim til sín...
- Auglýsing -

Forseti Íslands var radd- og orðlaus eftir sigurinn

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, var raddlaus og nánast orðlaus, þegar hann sendi íslensku strákunum í landsliðinu kveðju á Facebook eftir sigurinn glæsilega í kvöld. „Þjóðhetjur, takk. Ég á ekki frekari orð. Förum alla leið,“ segir forseti m.a. í kveðju...

Myndskeið: Þegar Viktor Gísli lokaði í lokin

Viktor Gísli Hallgrímsson var einn þeirra sem átti stórbrotinn leik í kvöld þegar íslenska landsliðið vann það franska, 29:21, í annarri umferð milliriðlakeppni EM í handknattleik. Viktor Gísli kórónaði frammistöðu sína með því að verja vítakast frá Hugo Descat þegar...

Darri og Þráinn Orri kallaðir inn í EM-hópinn

Darri Aronsson og Þráinn Orri Jónsson, leikmenn Hauka, er lagðir af stað til móts við íslenska landsliðið í handknattelik á Evrópumeistaramótinu í handknattleik. Haukar greina frá þessu á samfélagssíðum sínum í kvöld og birta mynd af þeim félögum fyrir...
- Auglýsing -

Myndasyrpa: Ísland – Frakkland, 29:21

Íslenska landsliðið vann öruggan sigur á Frökkum í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik karla í kvöld, 29:21, í MVM Dome í Búdapest. Leikmenn létu áföll undanfarinna daga ekki slá sig út af laginu, þvert á móti virtust þeir hafa eflst...

Það var að duga eða drepast

„Ég er bara alveg hreint orðlaus eftir þetta,“ sagði Elliði Snær Viðarsson landsliðsmaður í handknattleik í samtali við handbolta.is eftir átta marka magnaðan sigur íslenska landsliðsins í handknattleik á Frökkum í milliriðlakeppni EM í Búdapest, 29:21. „Það var markmiðið að...

Frakkar teknir í stórbrotna kennslustund

Íslenska landsliðið í handknattleik karla lék einhvern sinn stórbrotnasta leik sem um getur í kvöld þegar það kjöldró Ólympíumeistara Frakka í annarri umferð milliriðlakeppninnar í handknattleik karla í MVM Dome í Búdapest í kvöld, lokatölur, 29:21. Ísland var með...
- Auglýsing -

Magnús Óli og Vignir með á EM í fyrsta sinn

Valsmennirnir Magnús Óli Magnússon og Vignir Stefánsson leika sína fyrstu leiki í lokakeppni Evrópumóts karla í handknattleik þegar þeir koma inn í íslenska landsliðið þegar það mætir Frökkum í annarri umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik í MVM Dome í...

Janus Daði og Arnar Freyr bætast í hóp smitaðra

Tveir leikmenn íslenska landsliðsins til viðbótar greindust með covid19 við skimun í morgun. Um er að ræða Arnar Freyr Arnarsson og Janus Daða Smárason eftir því sem fram kemur í tilkynningu sem var að berast frá Handknattleikssambandi Íslands fyrir...

Áfram syrtir í álinn hjá Alfreð

Enn þyngist róðurinn hjá Alfreð Gíslasyni og liðsmönnum hans í þýska landsliðinu í handknatteik. Fyrir stundu var tilkynnt að tveir leikmenn til viðbótar hafi greinst með kórónuveiruna, Sebastian Firnhaber and Christoph Steinert. Nýjustu smitin eru mjög mikið áfall fyrir þýska...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -