Fréttir

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ólafur og félagar komnir í efsta sætið

Ólafur Andrés Guðmundsson og samherjar hans í franska liðinu Montpellier eru komnir í efsta sæti A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik þegar sex umferðir eru að baki. Montpellier vann Zagreb á útivelli í gærkvöld, 25:22, eftir að hafa verið marki...

Dagskráin: Taplausu liðin mætast

Nóg verður um að vera í Olísdeildum kvenna og karla í kvöld þegar keppni hefst í fimmtu umferð í kvennaflokki en í sjöttu umferð hjá körlunum. Önnur viðureignin í Olísdeild karla er sannkallaður toppslagur. Þeir gerast vart stærri leikirnir, svo...

Molakaffi: Elías Már, Axel, Harpa Rut, Magnús Orri

Elías Már Halldórsson og liðsmenn hans í Fredrikstad Bkl. féllu í gærkvöld úr leik í átta liða úrslitum norsku bikarkeppninnar með þriggja marka tapi fyrir Molde á heimavelli, 31:28. Þar með er ljóst að Íslendingar koma ekki við sögu...
- Auglýsing -

Ekki kvöld Íslendinganna

Þetta var ekki kvöld Íslendinga í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Íslendingatríóið hjá Gummersbach mátti bíta í það súra epli að tapa í fyrsta sinn í deildinni á leiktíðinni. Sömu sögu er að segja um íslensku tvímenningana í EHV...

Áfram herjar veiran á Grillið

Til stóð að ungmennalið Selfoss og Hauka leiddu saman hesta sína í Grill66-deild karla í handknattleik í Sethöllinni í kvöld. Skömmu áður en leikurinn átti að hefjast var honum slegið á frest vegna smita kórónuveiru á Selfossi. Er um...

Einar Pétur semur við HK

Hornamaðurinn Einar Pétur Pétursson hefur samið við Olísdeildarlið HK um að leika með því út yfirstandandi keppnistímabil. Þetta hefur handbolta.is samkvæmt heimildum og að Einar Pétur hafi skrifað undir samning í dag.Einar Pétur, sem er vinstri hornamaður, lék með...
- Auglýsing -

Olísdeild karla – 5. umferð, samantekt

Fimmta umferð Olísdeildar karla í handknattleik hófst sunnudaginn 3. október og lauk á síðasta mánudagskvöld. Helstu niðurstöður leikjanna eru þessar: ÍBV - FH 26:25 (13:12). Mörk ÍBV: Rúnar Kárason 5, Kári Kristján Kristjánsson 5/1, Gabríel Martinez Róbertsson 4, Dagur Arnarsson 3,...

Lovísa setur sjálfa sig í fyrsta sæti – leitar gleðinnar á ný

Lovísa Thompson, leikmaður Vals og íslenska landsliðsins í handknattleik, ætlar að rifa seglin um stundarsakir og taka sér hlé frá handknattleik þangað til hún finnur löngunina á nýja leik. Hún ætlar að sleppa takinu af Lovísu Thompson og vera...

Stefnir á að mæta til leiks í febrúar

Unglingalandsliðsmaðurinn efnilegi Símon Michael Guðjónsson stefnir á að geta byrjað að leika með HK á ný í febrúar, þegar keppni í Olísdeildinni hefst aftur eftir að hlé verður gert vegna Evrópumeistaramótsins í handknattleik. Símon Michael fór úr axlarlið í...
- Auglýsing -

Dagskráin: Ungmenni mætast á Selfossi

Einn leikur verður á dagskrá Íslandsmótsins í handknattleik karla í kvöld. Ungmennalið Selfoss og Hauka mætast í Sethöllinni á Selfossi klukkan 20. Um er að ræða leik úr þriðju umferð deildarinnar. Að loknum leiknum á Selfossi í kvöld verður...

Andstæðingur KA/Þórs: Spænsku bikarmeistararnir

Club Balonmano Elche verður andstæðinguri Íslands- og bikarmeistara KA/Þórs í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik kvenna. Leikirnir eiga að fara fram 13. eða 14. nóvember annarsvegar og 20. og 21. nóvember hinsvegar. Verði sú leið valin að leika heima...

Molakaffi: Harpa Rut, Andrea, Entrerrios, Matic, Lassen, Gomez, Moraez

Harpa Rut Jónsdóttir og samherjar hennar í svissneska meistaraliðinu LK Zug mæta hollenska liðinu Cabooter Handbal Velno í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar. Leikirnir fara fram  eftir miðjan nóvember og eiga Harpa og félagar fyrri leikinn á heimavelli.  Andrea Jacobsen og félagar...
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Brekka á Selfossi, ekki sést fyrir norðan

Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist...

Olísdeild kvenna – 4. umferð, samantekt

Fjórðu umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik lauk á laugardaginn. Helstu niðurstöður eru þessar: HK - ÍBV 27:21 (14:9). Mörk HK: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 8, Sara Katrín Gunnarsdóttir 7, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 5, Tinna Sól Björgvinsdóttir 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Þóra...

Misjafnt gengi Íslendinga – öll úrslit og staðan

Eftir naumt tap á heimavelli fyrir Benfica fyrir viku þá sneru Bjarki Már Elísson og félagar í Lemgo dæminu við í kvöld og unnu franska liðið Nantes með minnsta mun, 28:27, í Frakklandi í annnarri umferð í riðlakeppni Evrópudeildarinnar...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -