Grill 66-deild kvenna

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðlaug Embla hefur fært sig um set

Guðlaug Embla Hjartardóttir hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild Gróttu. Hún er fædd árið 2002 og kemur frá Val þar sem hún hefur leikið undanfarin ár með ungmennaliði félagsins. Guðlaug Embla leikur sem línumaður og hefur æft og leikið...

Grill 66kvenna: Emilía Ósk skoraði 10 mörk í Safamýri

Emilía Ósk Steinarsdóttir skoraði 10 mörk fyrir FH og var markahæst á leikvellinum þegar FH vann nýliða Berserki í Safamýri, 35:15, í dag í næst síðasta leik 2. umferð Grill 66-deildar kvenna. FH-ingar voru með tögl og hagldir í...

Dagskráin: Grill 66- og 2. deild

Einn leikur fer fram í Grill 66-deild kvenna í dag og annar í Grill 66-deild karla. Annarri umferð lýkur í báðum deildum á morgun, mánudag. Til viðbótar verður flautað til leiks í 2. deild karla. Upphafsleikur deildarinnar verður háður í...
- Auglýsing -

Grill 66kvenna: Þrettán marka sigur Gróttu

Grótta vann stórsigur á HK í eina leik dagsins í Grill 66-deild kvenna í handknattleik, 29:16. Liðin mættust í Kórnum í Kópavogi. Eins og úrslitin gefa til kynna var Gróttuliðið mikið sterkara frá upphafi til enda. Staðan að loknum...

Dagskráin: Leikið í þremur deildum og í Evrópukeppni

Fjórðu umferð Olísdeildar kvenna lýkur í dag með viðureign Fram og Hauka í Úlfarsárdal. Stefán Arnarson þjálfari Hauka mætir á sinn fyrri heimavöll og mætir nokkrum af þeim leikmönnum sem hann þjálfaði hjá Fram. Reikna má með jöfnum og...

Grill66 kvenna: Selfoss og Víkingur unnu ungmennalið

Selfoss og Víkingur halda áfram á sigurbraut í Grill 66-deild kvenna í handknattleik. Liðin unnu sína leiki í 2. umferð sem hófst í kvöld. Selfoss lagði ungmennalið Fram í Sethöllinni á Selfossi, 38:31, eftir að hafa verið þremur mörkum...
- Auglýsing -

Dagskráin: Sjö viðureignir heima og að heiman

Sex leikir fara fram í þremur deildum Íslandsmótsins í handknattleik í kvöld. Fjórðu umferð Olísdeildar karla lýkur með þremur leikjum, m.a. Reykjavíkurslag í Origohöll Vals. Leikjakvöldið hefst með viðureign KA/Þórs og Stjörnunnar í KA-heimilinu klukkan 18. Liðin reka lestina...

Grill66 kvenna: FH vann síðasta leik umferðarinnar

Fyrstu umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik lauk í kvöld með viðureign FH og ungmennaliðs Vals í Kaplakrika. FH hafði betur, 25:22, eftir að hafa verið marki yfir eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik, 14:13. FH byrjaði leikinn af krafti og komst...

Kvennakastið – annar þáttur

2. þáttur af Kvennakastinu, hlaðvarpsþætti þar sem kastljósinu er beint að handknattleik kvenna, er kominn í loftið. Meðal efnis:🔥 Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals í viðtali.🔥 Valur með alvöru frammistöðu gegn stórliði frá Rúmeníu.🔥 Toppslagir á sitthvorum enda töflunnar í...
- Auglýsing -

Dagskráin: Eyjar og Kaplakriki

Tveir leikir verða háðir á Íslandsmótinu í handknattleik í kvöld ef samgöngur setja ekki strik í reikninginn. Fjórða umferð Olísdeildar kvenna hefst í Vestmannaeyjum með viðureign ÍBV og Aftureldingar. Til stóð að leikurinn færi fram í gær. Vegna þátttöku...

Grill66 kvenna: Framarar og Víkingar fögnuðu

Ungmennalið Fram hóf keppni í Grill 66-deild kvenna í dag með sigri á HK, 23:22, í Úlfarsárdal. Á sama tíma vann Víkingur liðskonur Berserkja, 30:18, í Safamýri þar sem liðin deila heimavelli. Berserkir mættu í fyrsta sinn með lið...

Dagskráin: Íslandsmótið og Evrópukeppni

Ekkert verður af viðureign ÍBV og Aftureldingar í Olísdeild kvenna sem til stóð að fram færi í dag í Vestmannaeyjum. Samgöngur setja strik í reikninginn. Gerð verður atlaga til að koma leiknum á dagskrá annað kvöld. Valur mætir rúmenska...
- Auglýsing -

Grill66 kvenna: Grótta og Selfoss unnu með miklum mun – úrslit og staðan

Keppni hófst í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í kvöld með tveimur viðureignum. Hvorug þeirra var spennandi, því miður. Grótta og ungmennalið Hauka hófu leiktíðina klukkan 18 í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi. Grótta vann með 13 marka mun, 35:22, eftir...

Grótta fær liðsauka úr Eyjum og Safamýri

Handknattleiksdeild Gróttu hefur skrifað undir samninga við Ólöfu Maríu Stefánsdóttur og Söru Xiao Reykdal til tveggja ára.Ólöf María kemur frá ÍBV þar sem hún varð deildar- og bikarmeistari með liðinu í vor. Ólöf skoraði 9 mörk fyrir liðið á...

Dagskráin: Keppni hefst í Grill 66-deild – Þrjár viðureignir í Olísdeild

Fimm leikir eru fyrirhugaðir í tveimur deildum Íslandsmótsins í handknattleik í kvöld. Keppni hefst í Grill 66-deild kvenna með tveimur viðureignum. Auk þess verður framhaldið 3. umferð Olísdeildar karla sem hófst í gærkvöld með tveimur leikjum. Leikir kvöldsins Grill 66-deild kvenna:Hertzhöllin:...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -