Landsliðin

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þriggja marka tap á Eiði – leita hefndar í Vestmanna

Piltarnir í U19 ára landsliðinu töpuðu í dag fyrri viðureigninni við færeyska jafnaldra sína sem fram fór á Eiði í Færeyjum, 36:33. Færeyingar voru marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:17. Liðin mætast öðru sinni í Vestmanna á morgun...

U19: Tvær breytingar á hópnum sem keppir í Færeyjum

Heimir Ríkarðsson og Einar Jónsson þjálfarar 19 ára landsliðs karla í handknattleik hafa kallað tvo leikmenn inn í landsliðshópinn sem fer til Færeyja í dag til tveggja leikja við lið heimamanna á morgun og á sunnudag. Breytingarnar eru gerðar...

U18 piltar: Ísland er í sjötta sæti í Evrópu

Ísland er í sjötta sæti á styrkleikalista Handknattleikssambands Evrópu yfir karlalandslið 18 ára og yngri. Við gerð listans er hafður til hliðsjónar árangur 18 ára landsliða á Evrópumótum landsliða frá 2018 til 2022. Staða Íslands undirstrikar hversu góður árangur...
- Auglýsing -

U17ÓÆ: Taka þátt í Ólympíuhátíðinni í Maribor

Landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, tekur þátt í Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem hefst í Maribor í Slóveníu á sunnudaginn. Þetta er annað árið í röð sem Ísland hefur rétt á að senda handknattleikslið karla til...

Molakaffi: Íberubikarinn, B-EM kvenna, meiðsli í íslenska hópnum fyrir HM

Svo vel þótti takast til á síðasta tímabili þegar bestu lið grannþjóðanna Spánar og Portúgal kepptu í fyrsta sinn um Íberubikarinn í karlaflokki að ákveðið hefur verið að koma á fót sambærilegri keppni í kvennaflokki sem fram fer í...

U19piltar: Vængbrotið íslenskt lið tapaði æfingaleik

Vængbrotið landslið Íslands í handknattleik pilta, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, tapaði æfingaleik fyrir þýska landsliðinu í Lübeck í morgun, 43:30, eftir að hafa verið þremur mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 21:18. Tólf leikmenn tóku þátt í...
- Auglýsing -

EMU19: Lilja er á meðal allra markahæstu

Lilja Ágústsdóttir var fimmta markahæst á Evrópumóti 19 ára landsliða sem lauk síðdegis í Rúmeníu með sigri Ungverja. Lilja skoraði 48 mörk í sjö leikjum íslenska liðsins í mótinu, eða rétt tæp sjö mörk að jafnaði í leik.Af íslensku...

EMU19: Ungverjar unnu í þriðja skiptið í röð

Lítt kom á óvart að Ungverjaland varð í dag Evrópumeistari í handknattleik kvenna, liðum skipuðum 19 ára og yngri. Ungverska landsliðið vann danska landsliðið með níu marka mun í úrslitaleik, 35:26. Danir syndu tennurnar í fyrri hálfleik og voru...

EMU19: Úrslitaleikir um helgina

Evrópumót kvenna í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 19 ára, verður til lykta leitt á sunnudaginn. Úrslitaleikir mótsins standa fyrir dyrum á laugardag og sunnudag. Leikur um 1. sætið, sunnudagur:Ungverjaland - Danmörk 35:26 (17:14).Leikur um 3. sætið, sunnudagur:Rúmenía - Portúgal...
- Auglýsing -

EMU19: Risastórt skref fyrir kvennahandboltann – myndir

Hinn þrautreyndi handknattleiksþjálfari, Ágúst Þór Jóhannsson, og annar þjálfara U19 ára landsliðs kvenna segir að sú staðreynd að U19 ára landsliðið hafi tryggt sig inn á þriðja stórmót A-liða (HM20 ára á næsta ári) í röð sé afar stórt...

EMU19: Léku einn sinn besta leik þegar mest á reyndi

„Þetta er einhver best útfærði leikur sem stelpurnar hafa leikið undir minni stjórn,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson annar þjálfara U19 ára landsliðs kvenna í handknattleik við handbolta.is eftir að liðið tók Serba í karphúsið á Evrópumótinu í handknattleik í...

EMU19: Stúlkurnar kjöldrógu Serba og tryggðu sér HM-sæti

Stúlkurnar í U19 ára landsliðinu í handknattleik burstuðu Serba með 11 marka mun, 33:22, í síðasta leik sínum á Evrópumótinu í Rúmeníu í dag. Með sigrinum tryggði Ísland sér þátttökurétt á heimsmeistaramóti 20 ára landsliða í Norður Makedóníu á...
- Auglýsing -

U19piltar: „Voru hreint magnaðir í 45 mínútur“

Piltarnir í U19 ára landsliði karla í handknattleik fylgdu eftir góðum sigri sínum á Hollendingum í gær með því að vinna Þjóðverja í kvöld, 27:21, á æfingamóti í Hansehalle í Lübeck. Þjóðverjar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14:12....

EMU19: Stelpurnar mæta Serbum í úrslitaleik HM-sæti

Stúlkurnar í 19 ára landsliði Íslands í handknatteik mæta Serbum í leik um 13. sæti á Evrópumótinu í Mioveni í Rúmeníu á morgun. Það varð ljóst eftir að Serbar unnu Króata með fimm marka mun, 31:26, á mótinu í...

EMU19: Með betri leikjum sem liðið hefur leikið

„Ég er mjög sáttur og glaður með heildarframmistöðuna sem var mjög góð. Þetta var með betri leikjum sem við höfum leikið. Við hefðum getað unnið með tíu marka mun en það skiptir ekki öllu þegar upp staðið. Mestu máli...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -