- Auglýsing -
Níundu umferð Olísdeildar karla lýkur í kvöld með þremur leikjum. Þar með verða eru 13 umferðir eftir þangað til að úrslitakeppni kemur. Leikið verður í kvöld í Reykjavík, í Vestmannaeyjum og í Hafnarfirði þar sem grannaslagur verður á milli FH og Hauka í Kaplakriki. Það er án efa stærsti leikur umferðinnar sem hófst í gær með þremur leikjum.
Haukar eru í öðru sæti deildarinnar með 12 stig eftir sjö leiki og er það lið sem hefur tapað fæstum stigum til þessa. FH er stigi á eftir og hefur leikið einum leik fleira.
Origohöllin: Valur – Stjarnan kl. 18 – sýndur á Stöð2Sport.
Vestmannaeyjar: ÍBV – KA, kl. 18 – sýndur á ÍBVtv.
Kaplakriki: FH – Haukar, kl. 19.40 – sýndur á Stöð2Sport.
- Auglýsing -