- Auglýsing -
Fyrsti leikur ársins í Grill66-deild karla fer fram í kvöld í Sethöllinni á Selfossi þegar ungmennalið Selfoss og Hauka eigast við. Leikurinn átti að fara fram snemma vetrar en var þá frestað vegna veirunnar sem enn er allt um kring. Annars fer keppni á fulla ferð í Grill66-deildinni þegar líður inn í vikuna.
Til viðbótar hefst UMSK-mótið í handknattleik karla í kvöld. Því var frestað í haust áður en keppnistímabilið fór fram og tekin ákvörðun að leika það í janúar. Nú er sú stund runnin upp.
Leikir kvöldsins
Grill66-deild karla:
Sethöllin: Selfoss U – Haukar U, kl. 19 – sýndur á Selfosstv.
Stöðuna og næstu leiki í Grill66-deild karla má sjá hér.
UMSK-mót karla:
Hertzhöllin: Grótta – Afturelding, kl. 18.
- Auglýsing -