- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efnilegar handknattleikskonur halda tryggð við Hauka

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Ungar og efnilega handknattleikskonur hjá Haukum, Emilía Katrín Matthíasdóttir, Rakel Oddný Guðmundsdóttir og Thelma Björgvinsdóttir Melsteð hafa allar framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Hauka og munu þær leika með meistaraflokki félagsins næstu árin.

Emilía Katrín Matthíasdóttir. mynd/Haukar


Emilía, Rakel og Thelma eru hluti af 2004 árgangi félagsins sem vann bikar- og deildarmeistaratitil á liðnu tímabili. Þær hafa allar verið hluti af meistaraflokki félagsins síðustu tímabil og hefur tækifærum þeirra verið að fjölga og leiktíminn hverju sinni að lengjast jafnt og þétt. Einnig eiga þær allar landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir. mynd/Haukar


Rakel og Thelma eru í U-18 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Norður-Makedóníu í lok júlí og í byrjun ágúst.


„Það er mikið gleðiefni að ungir og efnilegir leikmenn félagsins framlengi samninga sína. Það er því með sanni hægt að segja að framtíðin sé björt á Ásvöllum,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka.

Thelma Björgvinsdóttir Melsteð. Mynd/Haukar
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -