Eftirmaður Berge er fundinn

Norska handknattleikssambandið hefur komist að niðurstöðu í leit sinni að eftirmanni Christian Berge þjálfara karlalandsliðsins samkvæmt frétt NRK, norska sjónvarpsins í morgun. Til stendur að ráða Jonas Wille, sem var aðstoðmaður Berge síðustu mánuðina í starfi, sem landsliðsþjálfara. Wille hefur þjálfað sænska liðið Kristianstad síðasta árið samhliða því að starfa við hlið Berge með landsliðið. … Continue reading Eftirmaður Berge er fundinn