- Auglýsing -
„Ég er að bíða eftir að barni,“ sagði handknattleiksmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson við handbolta.is þegar leitað var skýringa á því af hverju hann var ekki með Bietigheim í kvöld þegar liðið vann Lübbeck-Schwartau, 24:22, á útivelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik.
Aron og sambýliskona hans, Heiðdís Fjóla Tryggvadóttir, vænta barnsins í heiminn á hverri stundu. Um er að ræða fyrsta barn þeirra. „Schwartau er aðeins of langt frá til að taka séns á að fara,“ sagði Aron ennfremur í skilaboðum til handbolta.is.
Schwartau er í norðurhluta Þýskalands en Aron og Heiðdís Fjóla búa í Bietigheim sem er í suðurhluta Þýskalands, við Stuttgart.
- Auglýsing -