- Auglýsing -
- Auglýsing -

Einn í bann en annar slapp

Mynd/Ívar
- Auglýsing -

Þrándur Gíslason Roth, leikmaður Aftureldingar, tekur út leikbann þegar Afturelding sækir Selfoss heim í Olísdeild karla í Sethöllina á Selfossi á sunnudaginn. Hann sýpur þar með seyðið af útilokun sem hann fékk í viðureign Aftureldingar og Vals í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik á síðasta föstudag.


Þetta var niðurstaða aganefndar HSÍ sem fundaði í fyrradag en úrskurðurinn var birtur í síðdegis í gær.


Jón Bjarni Ólafsson, leikmaður FH, sem hlaut útilokun með skýrslu í leik Selfoss og FH á dögunum slapp hinsvegar með skrekkinn.


Úrskurð Aganefndar frá 5. október má lesa hér fyrir neðan:

„Þrándur Gíslason Roth leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Aftureldingar og Vals í Coca Cola bikar karla þann 1.10.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
Jón Bjarni Ólafsson leikmaður FH hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Selfoss og FH í Olís deild karla þann 28.09.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -