- Auglýsing -
- Auglýsing -

EM: Hver fylgir Rússum og Svíum eftir í milliriðil?

Sænska landsliðið hefur þegar tryggt sér sæti í millriðlum á EM. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Framundan en lokaumferðin í B-riðli þar sem Rússar og Svíar hafa nú þegar tryggt sér farseðilinn inní milliriðlakeppnina en þessi lið mætast einmitt í dag og þá kemur í ljós hvort liðið fer með fleiri stig með sér í milliriðlana. Þriðja og seinasta sætið úr þessum riðli verður í boði fyrir sigurvegarann úr leik Spánverja og Tékka.

Spánn – Tékkland | kl 17.15 | Beint á EHFTV.com
Dómarar:
Vanja Antic / Jelena Jakovljevic (Serbíu)

  • Spánverjar hafa hlotið 1 stig í riðlinum til þessa eftir jafntefli gegn Svíum en Tékkar eru enn án stiga þrátt fyrir góða frammistöðu í síðustu tveimur leikjum
  • Það lið sem vinnur þennan leik kemst áfram í milliriðla
  • Tékkinn Marketa Jerabkova er á meðal markahæstu leikmanna til þessa á mótinu en hún hefur skorað 14 mörk í þessum tveimur leikjum.
  • Leikurinn í dag verður barátta á milli markvarða liðanna. Petra Kudlackova markvörður Tékka hefur varið 29 skot til þessa á meðan Silvia Navarro markvörður Spánverja hefur varið 20 skot þar af voru 15 þeirra í síðasta leik.
  • Þjóðirnar hafa mæst 5 sinnum áður þar sem Spánverjar hafa unnið þrisvar sinnum en Tékkar tvisvar.
  • Lara Gonzalez hlaut rautt spjald í síðasta leik hjá Spánverjum en hún sleppur þó við leikbann og getur því tekið þátt í leiknum í dag.

Rússland – Svíþjóð | kl 19.30 | Beint á EHFTV.com
Dómarar:
Ioanna Christidi / Ioanna Papamattheou (Grikklandi)

  • Rússland er efst í riðlinum eftir tvær umferðir með fullt hús stiga. Svíar eru hins vegar í öðru sæti með þrjú stig.
  • Það lið sem vinnur þennan leik mun hafna í efsta sæti riðlisins og er þá komið í vænlega stöðu uppá sæti í undanúrslitum.
  • Rússnesku skytturnar Vladlena Bobrovnikova og Daria Dmitrieva eru á meðal þeirra leikmanna sem hafa flestar stoðsendingar á mótinu.
  • Þær Linn Blohm og Melissa Petren eru markahæstar í sænska liðinu en þær hafa skorað 10 mörk hvor það sem af er móti.
  • Rússar hafa unnið átta af þeim ellefu viðureignum sem þessar þjóðir hafa spilað en Svíar hafa unnið tvisvar og einu sinni hefur orðið jafntefli.
  • Anna Lagerquist línumaður Svía spilar með rússneska liðinu Rostov-Don og hún er því að mæta mörgum af sínum liðsfélögum í þessum leik.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -