- Auglýsing -
- Auglýsing -

Esbjerg komið í góða stöðu – Brest vann mikilvægan leik

Henny Ella Reistad og samherjar í Esbjerg eru í góðri stöðu A-riðli Meistaradeildarinnar. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Þrír leikir voru á dagskrá í Meistaradeild kvenna í gær en um var að ræða leiki sem varð að fresta fyrr i mánuðinum vegna kórónuveirunnar. Í B-riðli áttust við Kastamonu og Sävehof en gengi þessara liða hefur ekki verið gott í keppninni það sem af er leiktíðar. Sænska liðið hafði ekki unnið leik frá því í október en tókst þó að ljúka taphrinu sinni með því að vinna leikinn, 29-26. Tyrkneska meistaraliðið er því enn án stiga í Meistaradeildinni.


Esbjerg vann sinn sjöunda leik í röð í Meistaradeildinni er liðið lagði Podravka nokkuð örugglega 30-17 á heimavelli. Ósigur króatíska liðsins þýðir að það á ekki lengur möguleika á að komast í útsláttarkeppnina þótt enn séu þrjár umferðir eftir af riðlakeppninni.


Stórleikur helgarinnar var viðureign Brest og FTC en liðin berjast um tvö efstu sætin í A-riðli. Heimakonur í Brest höfðu betur, 30-25. Var það ekki síst að þakka stórleik franska landsliðsmarkvarðarins, Cleopatre Darleux. Hún varði 19 skot. Þetta er fimmti sigurleikur Brest á heimavelli á keppnistímabilinu en það er taplaust.


A-riðill:
Esbjerg 30-17 Podravka (18-7)

  • Sóknarleikur Podravka gekk ekki næginlega vel í upphafi leiks og komst heimaliðið fljótlega sjö mörkum yfir, 9-2.
  • Króatíska liðið náði aðeins að skora 7 mörk í fyrri hálfleik en það er versta frammistaða liðsins í einum hálfleik í Meistaradeild kvenna frá því í nóvember 2015 þegar að liðið skoraði aðeins sex mörk gegn Thüringer.
  • Danska liðið setti nýtt félagsmet í Meistaradeildinni yfir fæst mörk fengin á sig í einum leik eða 17 talsins. Eldra metið var 18 mörk gegn Sävehof í nóvember 2016.
  • Þetta var tíundi tapleikur króatíska liðsins í röð en það nálgast óðum eldra met sitt sem var 14 tapleikir.
  • Esbjerg á möguleika á því að tryggja sér farseðil beint í 8-liða úrslit með því að vinna Buducnost um næstu helgi.

Brest 30-25 FTC (19-16)

  • Í fyrsta skipti á þessu tímabili tókst Brest að vinna þrjá leiki í röð. Er liðið þar með komið upp fyrir FTC í riðlinum. Liðin eru jöfn að stigum en Brest stendur betur að vígi í innbyrðisleikjum.
  • Cleopatre Darleux markvörður Brest varði tíu skot í fyrri hálfleiknum og átti ekki hvað sístan þátt í að Brest var þremur mörkum yfir eftir fyrri hálfleik, 19-16.
  • Helene Fauske Gigstad var markahæst í liði Brest með 13 mörk.
  • Þetta er þriðja tap FTC í síðustu fjórum leikjum. Allir leikirnir hafa tapast á útivelli.
  • Þetta er aðeins í annað skipti sem Brest vinnur ungverskt félag í 11 leikjum í Evrópukeppni.
  • Brest, Esbjerg og Györ eru öll taplaus á heimavelli í Meistaradeildinni á leiktíðinni.


    B-riðill
  • Kastamonu 26-29 Sävehof (14-16)
  • Sävehof náði góðum 4-1 kafla undir miðjan fyrri hálfleik og komst yfir, 10:6.
  • Góð frammistaða Marinu Rajcic markvarðar átti stóran þátt í að liðinu tókst að minnka muninn í tvö mörk fyrir hálfleik.
  • Heimakonur náðu að jafna metin, 20-20. Sænsku gestirnirni náðu 6-2 kafla sem lagði grunn að sigrinum.
  • Börjesson markvörður Sävehof varði vel undir lok leiks, var með 41% hlutfallsmarkvörslu þegar upp var staðið.
  • Tolstrup Petersen skoraði sjö mörk fyrir Sävehof í leiknum en Jovanka Radicevic var markahæst hjá Kastamonu með sex mörk.
  • Sävehof komst í sjötta sætið með sex stig með sigrinum en Kastamonu er enn án stiga eftir ellefu tapleiki í röð.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -