- Auglýsing -
- Auglýsing -

Eyjamaður ráðinn á Selfoss

Svavar Vignisson t.v. ásamt Þóri Haraldssyni formanni handknattleiksdeildar Selfoss þegar Svavar var ráðinn þjálfari kvennaliðsins í fyrra. Mynd/UMFSelfoss
- Auglýsing -

Eyjamaðurinn Svavar Vignisson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Selfossi. Svavar tekur við að Erni Þrastarsyni sem þjálfað hefur meistaraflokksliðið.

Svavar, sem er 48 ára gamall, hefur bæði spilað með og þjálfað ÍBV. Hann var leikmaður liðsins frá 1990-2006 með tveggja ára viðkomu á meginlandinu, í FH. Hann þjálfaði meistaraflokk karla hjá ÍBV frá 2008-2010 og meistaraflokk kvenna frá 2010-2015.

„Ég er mjög spenntur að taka þjálfaraskóna af hillunni og vinna með faglegu teymi á Selfossi.  Selfoss hefur sýnt að þau kunna að búa til frábært handboltafólk bæði karla- og kvennamegin og vonandi tekst okkur teyminu að byggja á því góða starfi sem verið hefur á Selfossi,“ er haft eftir Svavari í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss.

„Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð með þessa ráðningu á Svavari og bindur miklar vonir við að hann verði mikilvægur hluti af áframhaldandi uppbyggingu kvennahandbolta á Selfossi. Rúnar Hjálmarsson mun halda áfram sem aðstoðarþjálfari liðsins líkt og undanfarin ár, ásamt því að vera styrktarþjálfari liðsins. Um leið þakkar handknattleiksdeildin Erni Þrastarsyni, fráfarandi þjálfara, fyrir gott starf í þeirri uppbyggingu sem staðið hefur yfir.  Örn mun snúa sér að öðrum störfum innan deildarinnar,“ segir ennfremur í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss sem barst í kvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -