- Auglýsing -
- Auglýsing -

Farsælt samstarf framlengt

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka t.v, og Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

Í síðustu viku undirrituðu Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, og Arion banki samkomulag um áframhaldandi samstarf þeirra á milli í höfuðstöðvum Arion banka.

Arion banki hefur verið einn af dyggustu bakhjörlum HSÍ allt frá árinu 2004 og er það afar mikilvægt fyrir íslenskan handknattleik að tryggja áframhaldandi samstarf við jafn öflugt fyrirtæki og Arion banki er, segir í fréttatilkynningu frá HSÍ.

Öll landslið HSÍ munu því áfram leika með merki Arion banka á sínum keppnisbúningum.

Það voru Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, og Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, sem undirrituðu samninginn.

„Við erum mjög ánægðir að halda áfram samstarfi við Arion banka.  Samstarf okkar hefur staðið yfir í langan tíma og gengið vel og erum við þakklát Arion banka að leggja sitt á vogaskálarnar til að efla handbolta á Íslandi,“ segir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ í fyrrgreindri fréttatilkynningu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -