- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ferð til Málaga bíður leikmanna ÍBV

ÍBV heldur áfram að gera það gott í Evrópubikarkeppninni. Mynd/Þóra Sif Kristinsdóttir
- Auglýsing -

ÍBV dróst á móti spænska liðinu Costa del Sol Málaga í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna þegar dregið var í morgun. Spænska liðið er ríkjandi meistari í keppninnar eftir að hafa lagt Zagreb í úrslitum í vor.

Verði leikið heima og að heiman fara viðureignir fram 12. og 13. febrúar annarsvegar og 19. og 20. febrúar hinsvegar. ÍBV fékk heimaleikjarétt í fyrri leiknum.

Takist ÍBV að komast áfram mætir liðið annað hvort HC DAC Dunajská Streda frá Slóvakíu í undanúrslitum eða ZRK Bekament Bukovicka Banja frá Serbíu. Dregið var einnig til undanúrslita í morgun.

Leikir 8-liða úrslita Evrópbikarkeppni kvenna:
HC Galychanka Lviv – H71.
ÍBV – Costa del Sol Malaga.
ZRK Bekament Bukovicka Banja – HC DAC Dunajská Streda.
Visitelche.com Bm Elche – Rocasa Gran Canaria.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -