Árni Bragi Eyjólfsson, leikmaður KA, hefur kastað boltanum að markinu þar sem Phil Döhler, markvörður FH, á fullt í fangi með að verja. Mynd/ J.L.Long
- Auglýsing -
FH og KA skildu jöfn, 31:31, í Olísdeild karla í handknattleik í gær eftir mikinn endasprett KA-manna en þeir skoruðu fjögur síðustu mörk leiksins í Kaplakrika. Jöfnunarmarkið var skoraði úr vítakasti sem dæmt var var eftir langa rekistefnu dómaranna þegar leiktíminn var úti.
FH er þar með í öðru til fjórða sæti ásamt Aftureldingu og ÍBV með níu stig. KA situr í áttunda sæti með fimm stig að loknum sex leikjum.
Jóhannes Long ljósmyndar hefur vart misst úr leik með karlaliði FH um langt árabil. Hann var á viðureigninni í Krikanum í gær og sendi handbolta.is myndir. Nokkrar þeirra birtast hér fyrir neðan. Handbolti.is þakkar Jóhannesi kærlega fyrir sendinguna og afnotin af myndunum.