- Auglýsing -
- Auglýsing -

FH krækir í hornamann frá Víkingi

Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH t.v. og Arnar Steinn Arnarsson glaðir í bragði eftir að samningur þess síðarnefnda við FH var innsiglaður. Mynd/FH
- Auglýsing -

Arnar Steinn Arnarsson hefur ákveðið að söðla um og leika áfram í Olísdeild karla á næsta leiktíð. Þess vegna hefur hann skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild FH. Arnar Steinn er örvhentur hornamaður og kemur til FH frá Víkingi.


Arnar Steinn skoraði 36 mörk í 20 leikjum með Víkingi í Olísdeildinni á síðasta tímabili. Hann á að baki landsleiki með yngri landsliðum Íslands.



„Arnar Steinn er mjög efnilegur og með töluverða reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Mjög spennandi leikmaður sem gaman verður að fylgjast með í FH treyjunni næstu árin. Við ætlum að mæta til leiks næsta vetur með breiðan og góðan hóp og teljum við Arnar Stein smellpassa inn í okkar umhverfi,“ segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH í tilkynningu frá deildinni.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -