- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fjórir núna en voru fimm síðast

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari Íslands. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Fjórir íslenskir handknattleiksþjálfarar verða í eldlínunni á HM karla í handknattleik sem fram fer í Egyptalandi í janúar en alls taka landslið þrjátíu og tveggja þjóða þátt í mótinu að þessu sinni. Það er einum þjálfara færra en á HM 2019 þegar fimm Íslendingar voru við stjórnvölin.

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands. Mynd/DHB


Alfreð Gíslason er landsliðsþjálfari Þýskalands sem verður í A-riðli með Grænhöfðaeyjum, Ungverjum og Úrúgvæ.
Dagur Sigurðsson er landsliðsþjálfari Japans sem verður í C-riðli með Angóla, Katar og Króatíu.
Guðmundur Þórður Guðmundsson er landsliðsþjálfari Íslands í F-riðli með Alsír, Marokkó og Portúgal.
Halldór Jóhann Sigfússon er landsliðsþjálfari Barein í D-riðli með Argentínu, Danmörku og Kongó.
Þátttökuþjóðir verða 32.

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans. Mynd/EPA

Fimm Íslendingar þjálfuðu landslið á HM karla 2019 sem fram fór í Danmörku og Þýskalandi.
Aron Kristjánsson – Barein
Dagur Sigurðsson – Japan
Guðmundur Þórður Guðmundsson – Ísland
Kristján Andrésson – Svíþjóð
Patrekur Jóhannesson – Austurríki
Þátttökuþjóðir voru 24.

Aron Kristjánsson stýrði landsliði Barein á HM 2019 og íslenska landsliðinu 2013 og 2015. Mynd/EPA


Á HM 2017 voru fjórir:
Dagur Sigurðsson – Japan
Geir Sveinsson – Ísland
Guðmundur Þórður Guðmundsson – Danmörk
Kristján Andrésson – Svíþjóð
Þátttökuþjóðir voru 24.

Kristján Andrésson var með sænska landsliðið á HM 2017 og 2019. Mynd/EPA


Á HM 2015 voru í fyrsta sinn fjórir Íslendingar þjálfarar landsliða á sama HM:
Aron Kristjánsson – Ísland
Dagur Sigurðsson – Þýskaland
Guðmundur Þórður Guðmundsson – Ísland
Patrekur Jóhannesson – Austurríki
Þátttökuþjóðir voru 24.

Patrekur Jóhannesson, fór með landslið Austurríkis á HM 2015 og 2019. Mynd/EPA
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfar landslið Barein á HM 2021. Mynd/Selfoss
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -