- Auglýsing -
- Auglýsing -

Frá Þýskalandi og á tveggja ára samning hjá Fram

Kristófer Dagur Sigurðsson kom til Fram í byrjun árs. Mynd/Fram
- Auglýsing -

Vinstri hornarmaðurinn Kristófer Dagur Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Kristófer kom til Fram frá Þýskalandi en þar lék hann með TV 05 Mülheim Oberligunni en þar áður lék hann með uppeldisfélagi sínu, HK.


Kristófer Dagur hefur leikið með Fram frá upphafi þessa árs og skorað 10 mörk í 10 leikjum í Olísdeildinni.


„Ég er mjög spenntur að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er í gangi í Fram. Mér líður vel í Fram og ég hlakka til að takast á við komandi verkefni. Ég vona að við fáum að fara að spila handbolta aftur sem fyrst en ég hef mikla trú á að við munum eiga góðan endasprett í deild og bikar,” er haft eftir Kristófer Degi í tilkynningu frá Fram.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -