- Auglýsing -
- Auglýsing -

Frábær helgi hæfileikamótunar á Laugarvatni

Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

Yfir 60 krakkar æfðu saman í Hæfileikamótun HSÍ á Laugarvatni síðustu helgi, var þetta lokahelgi Hæfileikamótunar í vetur. Jón Gunnlaugur Viggósson hefur haft yfirumsjón með verkefninu í vetur og skrifar hann hér að neðan hvernig helgin var hjá krökkunum.


Það má með sanni segja að æfingaferðin á Laugarvatn hafi gengið frábærlega og ekki skemmdi veðrið fyrir. Okkar markmið var að gera ferðina á Laugarvatn eftirminnilega fyrir krakkana og þjappa hópunum saman.


Lagt var af stað frá Laugardalnum um kl 14:00 á föstudaginn og vorum við mætt á Laugarvatn rétt eftir kl 15:00.


Eftir stuttan upplýsingafund þar sem krakkarnir fengu ristað brauð, hrökkbrauð og ávexti, röðuðum við krökkunum á herbergi eftir stafrófsröð, stelpur á efri hæð og strákarnir á neðri.


Skipt var í fjóra æfingahópa, tveir hjá stelpum og tveir hjá strákum. Við tóku æfingar hjá hópunum en frjáls tími hjá þeim sem ekki voru á æfingu. Nýttu krakkarnir tímann til að fara á kayak (undir eftirliti), í gleði úti, í billiard eða aðra afþreyingu sem Laugarvatn bauð upp á.


Æfingar föstudagsins voru í rólegri kantinum, farið var yfir tvö leikkerfi, yfirtöluæfingar og skot fyrir markmenn. Klukkutími í sal sem endaði svo á um 15 mínútu liðleikaæfingu undir handleiðslu markmannsþjálfara.


Í kvöldmat fengu krakkarnir ostapasta og hvítlauksbrauð en eftir kvöldmatinn var komið að samþjöppunarleikjum. Við skiptum hópnum í 8 lið þar sem hvert lið dró þrjá miða og átti að búa til 1 mínútu langt myndband tengt þeim orðum sem þau drógu. Miðarnir innihéldu Ofurhetju, eitthvað handboltatengt og eitthvað hversdagslegt.


Það var mikil gleði í hópnum og erfiðlega gekk að koma á ró í herbergjum (skiljanlega – okkur þjálfurum til mikillar gleði). Þegar klukkan var orðin 00:20 var ákveðið að nota „þjálfara-röddina“ til að fá ró inni á herbergjunum, enda var ræs kl 07:30 í frágang/þrif á herbergjum og morgunmat.


Boðið var upp á grjónagraut, ýmis morgunkorn, brauð, álegg og ávexti.
Við lögðum af stað 08:30 á Flúðir þar sem við tóku tvær æfingar, önnur í taktík varnar og sóknarlega en seinni æfingin var spil þar sem áherslur helgarinnar voru nýttar.


Lagt var af stað heim upp úr klukkan 15:00.


Handknattleikssambandið þakkar kærlega fyrir sig og vonar að ferðin hafi verið krökkunum skemmtileg og eftirminnileg.


Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr ferðinni.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -