Úrslitarimma deildarmeistara KA/Þórs og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna hefst á miðvikudaginn þegar liðin mætast í KA-heimilinu klukkan 18.
Vinna þarf tvo leiki til þess að verða Íslandsmeistari en úrslitakeppnin var stytt að þessu sinni vegna veirufaraldursins sem staðið hefur yfir í rúmt ár og sett stórt strik í reikninginn á Íslandsmótinu í handknattleik eins og víða annarstaðar í samfélaginu.
Önnur viðureign KA/Þórs og Vals verður í Origohöll Valsara á sunnudaginn eftir viku klukkan 16.30. Oddaleikur er áætlaður í KA-heimilinu miðvikudaginn 9. júní klukkan 19.30.
Deildarmeistarar KA/Þórs unnu ÍBV í oddaleik í þriggja leikja rimmu sem lauk í gær með framlengdri háspennu viðureign í KA-heimilinu, 28:27.
Valur vann sannfærandi sigur á deildarmeisturum síðasta árs, Fram, í tveimur leikjum. Sá síðari fór fram á miðvikudag í Origohöllinni.
KA/Þór leikur nú í fyrsta sinn um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna. Frá 1940 hefur Valur sautján sinnum orðið Íslandsmeistari í kvennaflokki.