- Auglýsing -
- Auglýsing -

Halda sig við tvo leikstaði

Lotte Grigel og samherjar í danska landsliðinu leika væntanlega í Jyske Bank Boxen í Herning á EM í desember. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Danska handknattleikssambandið ætlar að halda sig við tvo leikstaði þegar Evrópumót kvenna í handknattleik fer þar fram að hluta til í desember. Danir verða gestgjafar mótsins á ásamt Norðmönnum sem ætla að fækka keppnisstöðum úr þremur í einn eins og kom fram á handbolta.is í gær.


Í Danmörku verður leikið í riðlakeppninni í Frederikshavn og í Herning (Jyske Bank Boxen). Einnig fara leikir milliriðla fram í Herning eins og áður hafði verið kynnt.


Farið verður í einu og öllu eftir sóttvarnarreglum danskra yfirvalda. Eins og sakir standa verður heimilt að selja 500 aðgöngumiða á hvern leik. Vonast er til að heimilt verði að selja fleiri miða þegar á hólminn verður komið.


Auk riðlakeppninnar fara undanúrslit og úrslitaleikir mótsins fram í Þrándheimi í Noregi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -