Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu frá sér sinn 59. þátt í gærkvöld en umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson. Í þættinum fóru þeir yfir leikina í 21. umferð í Olísdeild karla. Þar héldu Haukar uppteknum hætti og rúlluðu yfir andstæðing sinn og það með því að leyfa óreyndari mönnum að spila mikið.
Undir lok þáttar fóru þeir yfir umspilið í Grill 66 -deild karla og þeir félagar voru vægast sagt fyrir miklum vonbrigðum með Fjölni. En þeir voru að sama skapi virkilega ánægðir með framgöngu Harðarmanna í einvígi sínu á móti Víkingum. Þeir félagar sjá fyrir sér að Víkingur verði með í Olísdeild karla á næstu leiktíð.
Þá völdu þeir leikmenn sem koma til greina sem BK leikmaður 21. umferðar í Olísdeild karla. Þeir sem tilnefndir eru að þessu sinni eru: Andri Már Rúnarsson (Fram), Guðmundur Bragi Ástþórsson (Haukum), Einar Sindrason (FH), Adam Thorstensen (Stjörnunni), Þorgils Jón Svölu Baldursson (Val) og Fannar Friðgeirsson (ÍBV).