- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: EM er yfir og allt um kring

- Auglýsing -

26.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld. Þetta var janframt 100. þátturinn hjá þeim félögum. Að þessu sinni voru það Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson sem settust í Klaka stúdíóið.


Að þessu sinni fóru þeir yfir fyrsta leikdag á EM ásamt því að velta fyrir sér möguleikum Íslands gegn Portúgal á morgun sem á mótinu í heild. Þeir eru enn sannfærðari eftir úrslit dagsins að íslenska liðið ætti hiklaust að setja stefnuna á topp 8 að lámarki.


Þá fóru þeir rækilega yfir það hversu þreyttir þeir eru á því hvað mönnum leyfist að tala niður til handboltans í hinum ýmsu þáttum tengt íþróttum og það fór sérstaklega fyrir brjóstið á þeim þegar handbolti var kallaður jaðaríþrótt og sér í lagi í þáttum tengdum rétthafa handboltans.


Þeir ræddu það að það væri kjörið fyrir handboltahreyfinguna að búa til einhvers konar fantasy leik í kringum handboltann á Íslandi.


Þá kynntu þeir til leiks nýjan styrktaraðila þáttarins en það er BK Kjúkllingur sem verður með getraunaleiki í kringum leiki liðsins þar sem að sá sem giskar á rétt úrslit fær gjafabréf hjá BK kjúkling að launum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -