- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Hola á Akureyri, Basti, þjóðarhöll í Færeyjum

- Auglýsing -

Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust niður í Klaka stúdíóinu sínu og tóku upp nýjan þátt sem kom fyrir eyru hlustenda í kvöld. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson.


Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 6. umferð Olísdeildar karla. Vandræði norðanmanna halda áfram. Það virðist ljóst að þeir eru komnir ofan í djúpa holu og þurfi að nota landsliðsfríið vel til þess að stilla saman strengi sína.


Þá þótti umsjónarmönnum ummæli Basta fyrir leikinn gegn Haukum mjög sérstök og spurðu þeir félagar sig að því hvaða taktík þetta væri hjá honum.


Í lok þáttar fóru þeir aðeins yfir aðstöðumál í Færeyjum en Færeyingar hafa ákveðið að byggja nýja keppnishöll. Umsjónarmenn þáttarins hvetja íslensk yfirvöld til að taka frændur okkar í Færeyjum til fyrirmyndar og jafnvel hreinlega fá teikningar af húsinu og hefjast handa við að byggja.


Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og eru eftirtaldir leikmenn gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Phil Döhler (FH), Gunnar Steinn Jónsson (Stjörnunni), Sigtryggur Daði Rúnarsson (ÍBV), Aron Rafn Eðvarðsson (Haukum) og Blær Hinriksson (Aftureldingu).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -