- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Kaflaskipti og mistök

- Auglýsing -

Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í gærkvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um seinni leiki Selfoss og Stjörnunnar annars vegar og Vals og KA hins vegar í 8-liða úrslitum í Olísdeild karla.

Leikurinn á Selfossi var kaflaskiptur þar sem að nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik byrjuðu heimamenn mun betur og skoruðu fimm fyrstu mörk hálfleiksins. Þá tók Patrekur Jóhannesson þjálfari Stjörnunnar leikhlé og endurskipulagði leik sinna manna og við það náðu gestirnir að snúa leiknum við sér í vil.

Það var hins vegar ekki mikil spenna í leik Vals og KA þar sem að Valsmenn voru með yfirhöndina í leikjum eins og í fyrri leiknum. Þeir félagar voru hins vegar á því að dómarar leiksins hafi gert mistök þegar þeir ákváðu að gefa Agnari Smára Jónssyni rautt spjald snemma leiks.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -