- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltinn okkar: Vaknaðir upp eftir dvala og spá í spilin

- Auglýsing -

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag eftir langa fjarveru og tóku upp sinn þrítugasta og áttunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson.


Í þættinum fóru þeir yfir lokastöðuna í Olísdeild karla og hvernig hún rímaði við spá þeirra félaga í haust. Þá spjölluðu þeir um það sem þeim fannst koma á óvart í vetur bæði jákvætt og neikvætt. Aðeins veltu þeir vöngum yfir úrslitakeppninni sem hefst eftir 10 daga. Voru þeir félagar sammála um að það yrði hörkuskemmtun.


Þá fóru þeir einnig yfir málin í Grill66 deild karla þar sem að Hörður frá Ísafirði varð deildarmeistari. Einnig fóru þeir yfir umspilið sem er framundan um laust sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Voru þeir ekki alveg sammála um hvaða lið það yrði sem myndi hreppa það sæti.

Að lokum fóru þeir yfir landsleikina sem eru framundan gegn Austurríki og þar voru þeir sammála um að íslenska liðið myndi komast áfram úr því umspili.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -