- Auglýsing -
- Auglýsing -

Haukar öngla í markvörð Vals

Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, býður Margréti Einarsdóttur velkomna í Hauka. Mynd/Haukar
- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Margréti Einarsdóttur um að leika með meistaraflokki félagsins næstu tvö árin. Margrét sem er uppalin í Fylki kemur til Hauka frá Val, þar sem hún hefur staðið sig vel í Olísdeildinni í ár, með rúmlega 40% vörslu.


Í tilkynningu frá Haukum segir að félagið bindi miklar vonir við Margréti sem leikið hefur fyrir öll yngri landslið Íslands en hún verður 21 árs á árinu.


„Margrét er markmaður sem við vildum fá til okkar, ung, hæfileikarík og með mikinn metnað. Mjög gleðilegt að hún hafi valið Hauka, þar sem hún og Annika mun skipa mjög sterkt markmannspar,” er haft eftir Gunnari Gunnarssyni, þjálfari Hauka í fréttatilkynningu.


Færeyski landsliðsmarkvörðurinn Annika Friðheim Petersen verður áfram með Haukum á næsta keppnistímabili.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -