- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hólmfríður Arna bætist í hópinn

Hólmfríður Arna Steinsdóttir nýr leikmaður á Selfossi. Mynd/Selfoss
- Auglýsing -

Hólmfríður Arna Steinsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára. Hólmfríður, sem er aðeins 17 ára, er leikstjórnandi og spilaði með Selfoss tímabilið 2019-20. 

Hólmfríður er uppalin í Eyjum og lék með ÍBV á síðasta tímabili.  Þá hefur hún verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands.

„Við bjóðum Hólmfríði hjartanlega velkomna til baka og verður spennandi að fylgjast með meistaraflokki kvenna á komandi tímabili, undir stjórn Svavars Vignissonar,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss.

Á dögunum samdi handknattleiksdeild Selfoss við skyttuna Roberta Ivanauskaitė og þjálfarann Svavar Vignisson svo ljóst er að ekki verða lagðar árar í bát við Ölfussána.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -