- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hvaða lið fylgja Esbjerg og Györ í átta liða úrslit?

Leikmenn Györ eru óstöðvandi á handboltavellinum. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna fer fram um helgina. Esbjerg og Györ hafa þegar tryggt sér efsta sætið í riðlunum tveimur  og þar með farseðilinn bent í 8-liða úrslitum. Baráttan um hin tvö sætin er enn í fullum gangi.

Brest og Rostov kljást um annað sætið í A-riðli en liðin á morgun. Í B-riðli eru það hins vegar Vipers Kristiansand og franska liðið Metz sem berjast um annað sætið í riðlinum. Norska liðinu bíður ærið verkefni en það þarf að leggja ósigrað lið Györ að velli ætli það sér að ná í farseðillinn beint í 8-liða úrslitin. Að öðrum kosti hreppir Metz hnossið. Það er þó ekki eina baráttusætið sem er eftir í B-riðli því Krim og Sävehof mætast í hreinum úrslitaleik um síðasta sætið í útsláttarkeppninni.

A-riðill

FTC – Dortmund | Laugardagur kl. 15 | Beint á EHFTV

  • FTC getur enn náð öðru sætinu í riðlinum en til þess þarf það að vinna sinn leik og treysta á að Brest vinni Rostov.
  • Ef að það tekst verður það í fyrsta skiptið í þrjú ár sem DTC tekst að komast í 8-liða úrslit keppninnar.
  • Þýska liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð.
  • Dortmund mun hafna í sjötta sæti riðilsins og mæta liðinu sem hlýtur þriðja sæti B-riðils í útsláttarkeppninni.
  • FTC er eitt af fjórum liðum sem hefur ekki tapað á heimavelli í Meistaradeildinni á keppnistímabilinu.

Buducnost – Podravka | Laugardagur kl. 17 | Beint á EHFTV

  • Buducnost mun hafna í sjöunda sæti í riðlinum ef það vinnur þennan leik.
  • Sigri Buducnost í leiknum verður það það annar sigurleikurinn í röð en það hefur ekki tekist síðan í febrúar 2020.
  • Podravka hefur tapað 12 leikjum í röð á þessari leiktíð og nálgast óðum sinn versta árangur sem er 14 tapleikir í röð frá september 2020 fram í mars 2021.
  • Þetta er 290. leikur Buducnost í Meistaradeildinni. Ekkert lið hefur leikið jafnmarga leiki í keppninni. Krim er í öðru sæti með 280 leiki og Györ er þar á með 250 leiki.
  • Þessi lið hafa skorað fæst mörk í Meistaradeildinni í vetur, Podravka 313 mörk og Buducnost 310.

Brest – Rostov-Don |Laugardagur kl. 17 | Beint á EHFTV

  • Þar sem að Rostov vann fyrri leik þessara liða þá verður Brest að vinna leikinn til að eiga möguleika á öðru sæti í riðlinum. Eins þarf Bresta að treysta á að FTC misstigi sig gegn Dortmund.
  • Brest hefur unnið alla sex heimaleiki sína til þessa í Meistaradeildinni. Aðeins Györ hefur betri árangur á heimavelli í vetur með sjö sigurleiki.
  • Brest er enn taplaust á þessu ári í Meistaradeildinni. Liðið hefur unnið fjóra leiki og gert eitt jafntefli
  • Rússneska liðið hefur fengið á sig fæst mörk allra liða í keppninni vetur, 284, sem gerir um 21,8 mark að meðaltali í leik. Þær eru eina liðið sem er enn á bak við 300 marka múrinn.
  • Rostov hefur aldrei tapað fyrir Brest á síðustu fimm árum.

CSM Búkarest – Esbjerg | Sunnudagur kl. 13 | Beint á EHFTV

  • Vinni Esbjerg leikinn verður það 11 sigurleikurinn í röð. Það væri félagsmet.
  • Danska liðið skortir 32 mörk til að rjúfa 1.500 marka múrinn í Meistaradeildinni. Ef það tekst verður Esbjerg 27. liðið til að ná þeim áfanga.
  • CSM mun hafna í fimmta sæti í riðlinum og mætir annað hvort CSKA eða Odense í útsláttarkeppninni.
  • Esbjerg hefur hins vegar nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum í annað sinn í sögu Meistaradeildarinnar.

B-riðill

Vipers – Györ | Laugardagur kl. 17| Beint á EHFTV

  • Ungverska liðið vill ljúka riðlakeppninni með stæl en það hefur unnið alla 13 leiki sína til þessa.
  • Györ hefur nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum en Vipers á möguleika á að tryggja sér sæti þar.
  • Norska liðið þarf að vinna Györ á sama tíma og og treysta á að Metz tapi fyrir CSKA til þess að ná öðru sæti í riðlinum.
  • Györ hefur sterkasta sóknarliðið í Meistaradeildarinna en það hefur skorað 442 mörk.

Krim – Sävehof | Sunnudagur kl. 13 | Beint á EHFTV

  • Krim er í sjötta sæti riðilsins með átta stig, tveimur meira en Sävehof.
  • Sænska liðið þarf á sigri að halda í leiknum til að ná inn í útsláttarkeppnina.
  • Krim hefur fengið fjögur stig á heimavelli í Meistaradeildinni á leiktíðinni. Sävehof hefur hins vegar tapað fimm af sex útileikjum sínum á keppnistímabilinu.

CSKA – Metz | Sunnudagur kl. 15 | Beint á EHFTV

  • CSKA eru nú með 14 stig í riðlinum og tryggir sér fjórða sætið með sigri á Metz.
  • Franska liðið er hins vegar í baráttu um annað sætið í riðlinum og nægir jafntefli í leiknum til að ná því.
  • Í síðasta leik gegn Odense náði franska liðið að rjúfa 4.000 marka múrinn í Meistaradeildinni og hefur nú skorað 4.028 mörk.
  • CSKA vann fyrri leik liðanna. Ana Gros skoraði 12 mörk.

Odense – Kastamonu | Sunnudagur kl. 15 | Beint á EHFTV

  • Odense er í fimmta sæti riðilsins með 13 stig og á möguleika á ná fjórða sætinu.
  • Þetta er síðasti möguleiki tyrkneska liðsins til þess að ná í stig í keppninni.
  • Jovanka Radicevic leikmaður Kastamonu er í fjórða sæti yfir markahæstu leikmenn með 80 mörk. Hún hefur skorað fimm mörkum færri en Jamina Roberst sem er markahæst.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -