Örvhenta skyttan efnilega hjá liði Selfoss, Ísak Gústafsson, leikur ekki oftar handknattleik á þessari leiktíð. Hann ristarbrotnaði á æfingu U20 ára landsliðsins í vikunni. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari karlaliðs Selfoss, staðfestir ótíðindin í samtali við Vísir í dag.
Halldór Jóhann segir í samtali við Vísir að Ísak verða frá keppni í þrjá mánuði af þessu sökum. Þar af leiðandi sé keppnistímabilinu lokið hjá honum.
Ísak hefur verið í eldlínunni með Olísdeildarliði Selfoss á keppnistímabilinu auk nokkurra leikja með ungmennaliði Selfoss sem leikur í Grill66-deildinni.
Ísak fór á kostum og skoraði 12 mörk þegar Selfoss vann Coca Cola-bikarinn í 3. flokki á síðasta föstudag eftir úrslitaleik við Fram, 32:26.