Neistin, sem Arnar Gunnarsson þjálfari, tapaði öðru sinni í kvöld fyrir VÍF frá Vestmanna í undanúrslitum færeysku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, lokatölur 28:23, fyrir VÍF.
Þar með liggur fyrir að VÍF mætir ríkjandi meisturum H71 í úrslitaleik um færeyska meistaratitilinn á næsta laugardag. Sama dag mætast Neistin og KÍF frá Kollafirði, sem Hörður Fannar Sigþórsson leikur með, í viðureign um bronsverðlaunin. KÍF tapaði naumlega fyrir H71 í tveimur viðureignum, þeirri síðari á laugardaginn.
VÍF var þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik í Höllinni á Hálsi í Þórshöfn í kvöld og var með yfirhöndina lengst um. Dánjal Ragnarsson sem nýverið gerði samning um að leika með ÍBV á næsta keppnistímabili var markahæstur hjá Neistanum með fimm mörk ásamt Rasmus Söby. Íslendingurinn Finnur Hansson var í leikmannahópi Neistans í leiknum. Hann skoraði ekki. Finnur er aðstoðarþjálfari liðsins.