- Auglýsing -
- Auglýsing -

Íþróttaakademían leggur áherslu á gæði og jákvæða upplifun

- Auglýsing -

Íþróttaakademía Íslands stendur fyrir Handboltabúðum á Laugarvatni dagana 18. – 21. júlí fyrir krakka fædd 2007-2011.


Á þessu fjögurra daga námskeiði er gist í þrjár nætur í uppábúnum rúmum með fullu fæði.


Æft er tvisvar sinnum á dag auk fyrirlestra en einnig er mikið lagt upp úr skemmtanagildinu og má þar nefna kayak-ferðir, sundlaugapartý, bubblubolta, ratleik, crazy cars og margt fleira.


Við leggjum mikla áherslu á gæði og jákvæða upplifun á námskeiðinu okkar og munu reynslumiklir þjálfarar og leikmenn mæta og þjálfa á námskeiðinu ásamt því að halda fyrirlestra.


Fjöldinn allur af hæfileikaríkum þjálfurum og leikmönnum mættu á námskeiðið okkar í fyrra og er skipulag námskeiðsins sumarið 2022 á sömu nótum.


Í fyrra seldist upp á námskeiðið á skömmum tíma.


Íþróttaakademía Íslands hefur sett af stað risa jólaleik á facebooksíðu sinni.

Takmörkuð sæti eru í boði og eru allar nánari upplýsingar á heimasíðu Íþróttaakademíu Íslands www.iai.is, á facebooksíðu Íþróttaakademíunnar eða í gegnum iai@iai.is. Verð 44.900 kr.

(Fréttatilkynning frá Íþróttaakademíu Íslands).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -