- Auglýsing -
- Auglýsing -

KA Íslandsmeistari í 4. flokki karla, yngra ár

Íslandsmeistarar KA í 4. flokki yngri 2021. Efri röð f.v.: Stefán Árnason, þjálfari, Kári Brynjólfsson, Jens Bragi Bergþórsson, Benjamín Þorri Bergsson, Hugi Elmarsson, Magnús Dagur Jónatansson, Dagur Árni Heimisson, Heimir Örn Árnason, þjálfari. Fremri röð f.v.: Arnar Guðlaugsson, Þormar Sigurðsson, Ævar Ottó Arnarsson, Óskar Þórarinsson, Úlfar Örn Guðbjargarson, Aron Daði Stefánsson, Heiðmar Örn Björgvinsson, Guðmundur Hlífar Jóhannesson. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

KA varð í dag Íslandsmeistari í 4. flokki karla, yngra ári. KA vann Aftureldingu í úrslitaleik að Varmá í Mosfellsbæ, 20:15. Jafnt var að loknum fyrri hálfleik, 9:9. KA-menn voru með tögl og hagldir allan síðari hálfleikinn þótt Aftureldingarliðinu tækist um skeið að jafna metin, 13:13.

Dagur Árni Heimisson. Mynd/HSÍ.

Dagur Árni Heimisson var valinn maður leiksins. Hann fetar í fótspor móður sinna, Mörthu Hermannsdóttur, sem varð Íslandsmeistari með KA/Þór á síðasta sunnudag.

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 6, Magnús Dagur Jónatansson 5, Heiðmar Örn Björgvinsson 3, Hugi Elmarsson 3, Aron Daði Stefánsson 2, Jens Bragi Bergþórsson 1.
Varin skot: Óskar Þórarinsson 10.

Mörk Aftureldingar: Hrafn Guðmundsson 7, Haukur Guðmundsson 4, Stefán Hjartarson 1, Daníel Bæring Grétarsson 1, Jökull Einarsson 1, Aron Valur Gunnlaugsson 1.
Varin skot: Sigurjón Atlason 13.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -