Leikjavakt tvö: Ásvellir og Dunajská

Framundan eru tveir hörkuleikir sem hefjast klukkan 18. Annarsvegar viðureign Hauka og Aftureldingar í Olísdeild karla sem fram fer á Ásvöllum og hinsvegar fyrri viðureign Vals og HC DAC Dunajská í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Handbolti.is ætlar að freista þess að fylgjast með leikjunum tveimur í textalýsingu hér fyrir neðan.