- Auglýsing -
- Auglýsing -

Línumenn framlengja samninga

Haddur J. Stefánsson formaður handknattleiksdeildar KA ásamt Einari Birgi Stefánssyni og Önnu Þyri Halldórsdóttir. Mynd/KA
- Auglýsing -

Anna Þyrí Halldórsdóttir og Einar Birgir Stefánsson skrifuðu í dag undir nýjan tveggja ára samning við KA og KA/Þór. Bæði hafa leikið tölvert hlutverk innan liðanna tveggja á síðustu árum en þau eiga það sammerkt að vera línumenn.


Anna Þyrí er 21 ára gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í KA/Þór undanfarin ár en hún hefur alls leikið 104 leiki fyrir liðið frá því hún lék sinn fyrsta leik veturinn 2017-2018. Auk þess að vera frábær á línunni í sókn þá er hún hrikalega öflug í vörninni og hefur undanfarin ár verið meðal efstu leikmanna Olísdeildar þegar kemur að löglegum stöðvunum.


Einar Birgir er 25 ára gamall og leikur rétt eins og Anna á línunni en hann lék sinn fyrsta leik fyrir KA veturinn 2017-2018 og hefur nú leikið alls 109 leiki fyrir félagið. Einar Birgir hefur bætt sig gríðarlega á undanförnum árum og átti frábært tímabil á nýliðnum vetri. Einar er gríðarlega öflugur varnarmaður en hann var í fimmta sæti yfir flestar löglegar stöðvanir í Olísdeildinni.


„Við fögnum því svo sannarlega að halda þeim Önnu og Einari áfram innan okkar raða og hlökkum svo sannarlega til komandi tímabils í handboltanum,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar KA.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -