- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Annika, Vranjes, Karabatic og Svan

Annika Fríðheim Petersen, markvörður Hauka. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -
  • Annika Fríðheim Petersen, markvörður Hauka, hefur verið valin í færeyska landsliðið sem tekur þátt í forkeppni að riðlakeppni Evrópumótsins í byrjun júní. Færeyska landsliðið verður í riðli með landsliðum Finnlands og Ísrael. Sigurlið riðilsins fær sæti í undankeppninni sem hefst í byrjun október en dregið var í riðla í lok mars. Forkeppnin fer fram í þremur riðlum. Færeyska landsliðið á góða möguleika á að komast áfram úr sínum riðli forkeppninnar. 
  • Ljubomir Vranjes, landsliðsþjálfari Slóvena í handknattleik karla, er orðaður við þjálfarastólinn hjá franska liðinu Limoges. Vranjes hefur ekki þjálfað félagslið frá því að honum var sagt upp hjá IFK Kristianstad í Svíþjóð undir lok síðasta árs. 
  • Franski landsliðsmaðurinn Nikola Karabatic er byrjaður að æfa af krafti eftir að hafa slitið krossband í október. Hann mun stefna á að taka þátt í Ólympíuleikunum í lok júlí með franska landsliðinu. 
  • Lasse Svan lék í gær sinn 600. leik fyrir Flensburg í Þýskalandi. Aðeins landi hans og fyrrverandi samherji, Lars Christiansen, hefur leikið oftar fyrir félagið.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -