- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Arnar Freyr, Berglind, Gros, Reistad, Gubica, Milosevic, Gasmi og Gasmi

Arnar Freyr Arnarsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður Melsungen í Þýskalandi. Mynd/J.L.Long
- Auglýsing -
  • Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Arnar Freyr Arnarsson, leikur áfram með þýska 1. deildarliðinu Melsungen á næsta keppnistímabili. Samningur hans tekur einnig yfir næsta keppnistímabil. Arnar Freyr staðfesti það við handbolta.is í gærmorgun. Hann kom til Melsungen sumarið 2020.
  • Berglind Gunnarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val. Berglind er fædd árið 2005 og hefur leikið fyrir 3. flokk félagsins. Hún er á meðal varamanni í undirbúningshópi U18 ára landsliðsins sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í Norður Makedóníu síðar í sumar.
  • Slóvenska stórskyttan Ana Gros hefur samið við ungverska meistaraliðið Györ. Gros hóf tímabilið hjá CSKA Moskvu en þegar Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar óskaði Gros eftir að vera leyst undan samningi. Í framhaldinu gekk hún til liðs við Krim Ljubljana og lék með liðinu út leiktíðina. Gros hefur áður verið hjá Györ, frá 2010 til 2012.
  • Norska landsliðskonan Henny Reistad var kjörin besti handknattleiksmaður Noregs 2021/2022 en síðan topphandball.no ásamt fleirum stóð fyrir valinu. Þetta er annað árið í röð sem Reistad verður fyrir valinu.
  • Króatarnir Matija Gubica og Boris Milosevic dæma úrslitaleik Meistaradeildar karla í handknattleik í Lanxess Arena í Köln 19. júní. Þetta verður í annað sinn á síðustu þremur árum sem þeir félagar dæma úrslitaleik keppninnar.
  • Frönsku bræðurnir Karim og Raouf Gasmi dæma bronsleik Meistaradeildar karla að þessu sinni. Þeir dæmdu síðari landsleik Íslands og Austurríkis í umspili fyrir HM hér á landi laugardaginn 16. apríl sl.
  • Mads Hansen og Jesper Madsen frá Danmörku dæma undanúrslitaleik Kielce og Veszprém og Serbarnir Nenad Nikolic og Dusan Stojkovic hina viðureign undanúrslitanna á milli Barcelona og Kiel.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -