- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Bjarni Ófeigur, Örn Ingi, Aðalsteinn, afganska landsliðið, Kalarash

Bjarni Ófeigur Valdimarsson t.h. við komuna til Skövde undir lok síðasta árs. Mynd/IFK Skövde
- Auglýsing -
  • Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék ekki með IFK Skövde á útivelli gegn Malmö í gærkvöld vegna lítilsháttar tognunar í nára. Skövde tapaði leiknum, 36:30. 
  • Örn Ingi Bjarkason hefur alveg gefið upp á bátinn að leika með Víkingi í Olísdeildinni í handknattleik í vetur. Örn Ingi sagði við handbolta.is í Víkinni í gær að handboltaskórnir væru endanlega komnir upp í hillu. Rykið verður ekki dustað af þeim í framtíðinni. Örn hefur lengi glímt við þrátlát meiðsli í hnjám sem styttu verulega ferilinn hjá honum. Nú er svo komið að ekki verður lengra haldið á handknattleiksvellinum sem leikmaður. Örn Ingi er aðeins 31 árs.
  • Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten unnu Zürich á heimavelli í gærkvöld 32:23. Kadetten hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína í efstu deildinni í Sviss. 
  • Ekkert varð úr þátttöku afganska landsliðsins í handknattleik kvenna á Asíumeistaramótinu sem hófst 15. september í Amman í Jórdaníu. Landsliðið var skráð til leiks áður en talibanar tóku völdin í Afganistan. Eftir valdaskipti urðu verulegar breytingar á stöðu kvenna í Afganistan m.a. með þessum afleiðingum en handknattleikur átti vaxandi fylgi að fagna meðal kvenna í landinu á síðustu árum. 
  • Landslið Katar dró sig einnig úr leik á Asíumeistaramótinu á elleftu stundu og var kórónuveirunni borið við. Landslið frá 11 þjóðum sendi landslið til leiks og hafa landslið Suður-Kóreu og Kasakstan farið vel af stað og unnið tvo fyrstu leiki sína.  Sæti á HM á Spáni í desember er í boði á mótinu sem átti að fara fram í Seúl snemma árs en var frestað fram á haust vegna veirunnar. 
  • Rússneski landsliðsmaðurinn Gleb Kalarash varð í gær samherji Daníels Þórs Ingasonar og Odds Gretarssonar hjá þýska liðinu Balingen-Weilstetten. Kalarash, sem m.a. var í landsliðshópi Rússa á EM 2016 og 2020, hefur verið á mála hjá Vardar Skopje. Kalarash, sem er 205 sentímetrar á hæð þekkir aðeins til í þýska handknattleiknum eftir að hafa leikið um skeið með SC Magdeburg.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -