- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Brasilíumenn unnu, Kühn, Frafjord, Aron, Cadenas

Daymaro Salina landsliðsmaður Portúgals. Mynd/EPA
- Auglýsing -
  • Brasilíumenn unnu Portúgala, 34:28, í vináttulandsleik í handknattleik karla í Portúgal í gær en lið beggja þjóða búa sig nú undir þátttöku í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna. Portúgal er með í fyrsta skipti.
  • Brasilíumenn voru fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:13. Fimm einn vörn brasilíska liðsins reyndist Portúgölum erfið. Daymaro Salina skoraði fjögur mörk fyrir Portúgal og var markahæstur. Leonardo Dutra var atkvæðamestur í brasilíska liðinu með sex mörk.
  • Portúgalska landsliðið á eftir að leika tvo vináttuleiki við spænska landsliðið áður en haldið verður til Tókýó. Fyrri leikurinn verður í Caminha 8. júlí og sá síðari tveimur dögum síðar í Vigo.
  • Þýski landsliðsmaðurinn Julius Kühn notaði tækifærið þegar nokkrir frídagar gáfust frá handboltaæfingum til þess að ganga í hnappelduna. Kühn, sem leikur undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar hjá MT Melsungen gekk að eiga sambýliskonu sína til nokkurra ára, Mirlinda, í bænum Kassel.
  • Brúðkaupsferðin verður að bíða betri tíma því Kühn á að mæta á æfingu með þýska landsliðinu á mánudaginn en þá hefst lokaundirbúningur fyrir Ólympíuleikanna undir stjórn Alfreðs Gíslasonar landsliðsþjálfara. Æft verður í Herzogenaurach.
  • Norska landsliðskonan Marit Frafjord segir að næsta tímabil sitt verði það síðasta með Team Esbjerg og hugsanlega það síðasta á ferlinum. Frafjord hefur átt afar sigursælan feril og m.a. unnið tólf sinnum til verðlauna með norska landsliðinu, þar af átta sinnum gullverðlaun.
  • Lærisveinar Arons Kristjánssonar í landsliði Barein mæta argentínska landsliðinu undir stjórn Manolo Cadenas í vináttuleik síðar í þessum mánuði en bæði lið eru að búa sig undir Ólympíuleikana.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -