- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Dæmdu eina leikinn, fleiri veikir og hættir, vongóður Norðmaður

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma á EM karla strax á fimmtudag. Mynd/Jóhannes Long
- Auglýsing -
  • Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leik Elverum og Flensburg í Meistaradeild karla í handknattleik í Elverum í Noregi í gærkvöld. Flensburg vann leikinn með eins marks mun, 30:29, og komst upp að hlið Vive Kielce í efsta sæti í A-riðli, hvort lið hefur 13 stig að loknum átta leikjum. Elverum rekur lestina með tvö stig eftir sjö  leiki. Þetta var eini leikur gærkvöldsins í Meistaradeildinni. Öðrum leikjum var frestað vegna kórónuveirunnar.
  • Um var að ræða fyrsta  leikinn sem þeir Anton og Jónas dæma í meira en tvo mánuði eða síðan keppni á Íslandsmótinu var frestað í byrjun október. 
  • Þriðji leikmaður þýska meistaraliðsins THW Kiel greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. Þar með hafa næstu leikir liðsins í þýsku 1. deildinni verið frestað en þeir áttu að vera á móti Essen og Melsungen. Vonir standa til þess að leikmenn Kiel verði orðnir fjallhressir 19. desember þegar til stendur að þeir mæti Stuttgart. 
  • Enn lengist listi yfir þá þýsku handknattleiksmenn sem geta eða vilja ekki taka þátt í HM í Egyptalandi. Fabian Wiede, örvhenta skytta Füchse Berlin, er meiddur á öxl og hefur dregið sig út úr 35 manna hópnum sem Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari, hefur úr að velja fyrir mótið.
  • Óstaðfestar heimildir í Danmörku herma að Emil Jakobsen, liðsfélagi Viktors Gísla Hallgrímssonar landsliðsmarkvarðar, hjá GOG gangi til liðs við Flensburg í sumar. Hann er þó með samning við GOG fram til ársins 2022. Jakobsen hefur verið frábær á leiktíðinni og m.a. skorað 93 mörk í leikjum dönsku úrvalsdeildarinnar þar sem hann situr í þriðja efsta sæti. Einnig hefur Jakobsen leikið afar vel með GOG í Evrópudeildinni í haust og í vetur. 
  • Eftir að hert var á sóttvarnareglum í Danmörku í vikunni mega flest félög ekki hleypa áhorfendum inn á leiki sína. Fram til þessa hefur mátt selja allt að 500 áhorfendum aðgang að leikjum.
  • Norski línumaðurinn þrautreyndi, Bjarte Myrhol, hefur ekki útilokað að taka þátt í HM í Egyptalandi. Myrhol er í endurhæfingu þessa dagana eftir að hafa gengist undir aðgerð á annarri öxlinni á haustmánuðum. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -