- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Grímur, Sigvaldi, Haukur, ÍR, Neistin, Grótta, Hörður

Grímur Hergeirsson t.h. ásamt Grétari Þór Eyþórssyni, formanni handknattleiksdeildar ÍBV. Mynd/ÍBV
- Auglýsing -
  • Handknattleiksdeild ÍBV staðfesti í gær að Grímur Hergeirsson hafi samið við deildina um að þjálfara meistaraflokkslið karla með Erlingi Richardssyni á komandi leiktíð. Nokkuð er síðan handbolti.is sagði frá þessu enda var Grímur með ÍBV-liðinu ásamt Erlingi á Ragnarsmótinu fyrir meira en hálfum mánuði. 
  • Grímur er þrautreyndur þjálfari. Hann stýrði karlaliði Selfoss leiktíðina 2019/2020 og var aðstoðarþjálfari frá 2015 til 2019. Hann var þessu til viðbótar þjálfari kvennaliðs Selfoss síðari hluta tímabils 2016-17 og hefur komið að yngri flokka þjálfun. Grímur er einnig lögreglustjóri í Vestmannaeyjum
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson landsliðsmaður í handknattleik skoraði fimm mörk þegar Vive Kielce vann Szczecin á útivelli, 34:20, í fyrstu umferð pólsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Haukur Þrastarson var ekki í leikmannahópi Kielce-liðsins sem var marki yfir í hálfleik, 14:13. Í síðari hálfleik var um einstefnu að ræða.
  • ÍR vann færeyska úrvalsdeildarliðið Neistan, 28:25, í æfingaleik í Austurbergi í gær. Neistin er hér á landi í vikulöngum æfingabúðum eins og handbolti.is sagði frá á dögunum.  ÍR-ingar töpuðu hinsvegar fyrir Fram, 33:28, í æfingaleik á föstudaginn. 
  • Ágúst Emil Grétarsson tryggði Gróttu eins marks sigur, 31:30, á Herði frá Ísafirði í æfingaleik liðanna í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í gær. Um var að ræða síðasta æfingaleik Gróttumanna áður en keppni hefst formlega þegar kemur fram í vikuna þegar blásið verður til leiks í Coca Cola-bikarnum. Grótta vann Selfoss, 28:24, í æfingaleik á föstudaginn.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -