- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Manea, Iturriza, Alekseev, án áhorfenda

Oana Manea ætlar að taka slaginn með Rapid Búkarest á næsta keppnistímabili. Mynd/EPA
- Auglýsing -
  • Ein þekktasta handknattleikskona Rúmeníu á síðustu árum, Oana Manea, hefur tekið fram keppnisskóna á nýjan leik 36 ára gömul. Manea hætti fyrir tveimur árum. Hún tók þátt í 12 stórmótum með rúmenska landsliðinu og var í sigurliði Györ í Meistaradeild Evrópu fyrir fimm árum. Manea tekur upp þráðinn nú með Rapid frá Búkarest
  • Portúgalski landsliðsmaðurinn Victor Iturriza hefur framlengt samning sinn við Porto til ársins 2026.
  • Alexei Alekseev, þjálfari rússneska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur framlengt samning sinn um þjálfun rússneska félagsliðsins Lada Togliatti. Liðið varð í þriðja sæti í rússnesku úrvalsdeildinni á nýliðnu keppnistímabili. 
  • Engir áhorfendur verða á leikjum handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem hefjast í Tókýó síðar í þessum mánuði. Þar verður leikið án áhorfenda á þriðja stórmótinu í röð. Tvö hin fyrri eru Evrópumót kvenna í Danmörku í desember og heimsmeistaramót karla í Egyptalandi í janúar. Til stóð að allt að 10 þúsund áhorfendur fengju að mæta á leiki handknattleikskeppni leikanna en vegna fjölgunar kórónuveirutilfella í Tókýó var ákveðið í gær að skella í lás á öllum viðburðum leikanna. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -