- Auglýsing -
- Óskar Ólafsson skoraði eitt mark og átti þrjár stoðsendingar þegar Drammen vann Kristiansand, 35:28, í norsku úrvalsdeildinni í gær. Hinn hálf íslenski Viktor Petersen Norberg skoraði níu af mörkunum 35 sem Drammenliðið skoraði. Drammen er í öðru sæti deildarinnar.
- Bjartur Már Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir StÍF þegar liðið steinlá fyrir KÍF, 41:22, í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leikurinn fór fram í Kollafirði. StÍF er í fimmta sæti af sjö liðum deildarinnar.
- Aðalsteinn Eyjólfsson og leikmenn hans í Kadetten Schaffhausen unnu fjórtánda sigurinn í svissnesku A-deildinni í handknattleik er þeir lögðu Suhr Aarau, 30:29, á útivelli. Kadetten er með 29 stig af 30 mögulegum og er 10 stigum á undan Pfadi Winterthur sem á leik til góða.
- Veselin Vujovic hætti störfum þjálfara hjá Vardar Skopje á laugardaginn. Árangur liðsins var ekki viðunandi undir hans stjórn að mati stjórnenda félagsins. Vardar hefur m.a. tapað sjö leikjum í Meistaradeild Evrópu. Tap fyrir PPD Zagreb á fimmtudagskvöld sveið mjög. Vujovic sagði í samtali við fjölmiðla í Norður Makedóníu að því miður hafi ekki náðst sá árangur undir sinni stjórn. Þess vegna væri rétt að leiðir skilji. Vujovic tók við þjálfun Vardar í sumar af Stevce Alusovski núverandi þjálfara Þórs á Akureyri.
- Greint var frá því í gær að Steffen Weinhold hafi framlengt samning sinn um eitt ár við þýska meistaraliðið THW Kiel.
- Anton Rúnarsson var markahæstur hjá TV Emsdetten með sex mörk þegar liðið vann stórsigur á Hüttenberg á heimavelli, 33:19, í 2. deild þýska handknattleiksins í gær. Emsdetten er í 11. sæti af 20 liðum.
- Auglýsing -